Hlutverk

Hlutverk Ung- og smábarnaverndarsviðs Þróunarstofu er að þróa, leiða og samræma heilsuvernd ung- og smábarna í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld og heilsugæsluna á landsvísu. Hefðbundin ung- og smábarnavernd fer fram á heilsugæslustöðvum og hefur það markmið að styðja við heilsu og þroska barna frá fæðingu til 6 ára aldurs.

Sviðsstjóri er Sesselja Guðmundsdóttir.

Helstu verkefni

  • Þróun og endurskoðun verklags- og vinnuleiðbeininga fyrir ung- og smábarnavernd.
  • Fræðsla og símenntun fagfólks heilsugæslunnar sem sinnir ung- og smábarnavernd, til dæmis með námskeiðum og fræðsludögum.
  • Fræðsla og gerð fræðsluefnis fyrir foreldra um efni sem snertir ung- og smábörn, til dæmis uppeldi.
  • Upplýsingar til starfsfólks heilsugæslunnar með viðeigandi efni, meðal annars með virkum tölvusamskiptum og upplýsingum á heimasíðu.
  • Söfnun upplýsinga um heilsufar barna og starfsemi ung- og smábarnaverndar og úrvinnsla þeirra.
  • Sérhæfð ung- og smábarnavernd fyrir börn sem eru fædd fyrir 32 vikna meðgöngu og/eða með fæðingarþyngd undir 1500 gr.
  • Ýmis sérverkefni, svo sem brjóstagjöf og næring, slysavarnir barna, svefn og svefnvandamál og agi og uppeldi.

Á sviðinu starfa auk sviðsstjóra fagfólk í ýmsum verkefnum. Unnið er í nánu samstarfi við annað fagfólk. 

Sjá einnig

Sérhæfð ung- og smábarnavernd fyrirbura

Á Þróunarstofu heilsugæslunnar er sérhæfð ung– og smábarnavernd fyrir börn fædd fyrir 32 vikna meðgöngu og/eða með fæðingarþyngd undir 1500 grömm. Markmiðið er að fylgjast reglulega með heilsu og framvindu á þroska fyrirburana. Þannig er fylgst með vitsmuna- og tilfinningaþroska, ásamt félagslegum og líkamlegum þroska frá fæðingu til sex ára aldurs. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna og þannig stuðlað að því að börnum séu búin bestu möguleg uppvaxtarskilyrði á hverjum tíma. Veitt er ráðgjöf og fræðsla og börnin bólusett. Við frávik ber að tryggja að barn fái viðeigandi stuðning og þjónustu fagaðila.
 
Hjúkrunarfræðingur fer í heimsókn til fjölskyldunnar á Vökudeild Barnaspítala Hringsins og fer í heimavitjun fljótlega eftir útskrift. Fjöldi heimavitjana fer eftir þörfum. Í heimavitjunum er fylgst með vexti og þroska barna, foreldrum veittar ráðleggingar og stuðningur.

Fyrsta heimsókn á Þróunarstofu fer eftir aldri barnsins við útskrift og hvenær barnið er í eftirliti hjá LSH. Við þriggja mánaða aldur hefjast bólusetningar. Skoðanir og bólusetningar eru einstaklingsmiðaðar og er gert ráð fyrir því að sum börn þurfi fleiri heimsóknir en önnur. Fylgst verður sérstaklega með vexti, þroska og hegðun barnanna.

Sambærileg ung- og smábarnavernd fyrirbura er í Heilsugæslunni Firði og Heilsugæslunni Sólvangi í Hafnarfirði.

Bæklingur

Ung- og smábarnavernd fyrirbura