Um stofuna
Þróunarstofa heilsugæslunnar hefur heildarumsjón með með kennslu, rannsóknum og gæðaþróun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH).
Þróunarstofan var sett á laggirnar í maí 2009 í framhaldi af nýjum áherslum. Þróunarstofan tekur að hluta til við fyrri verkefnum Miðstöðvar
mæðraverndar, Miðstöðvar heilsuverndar barna og Miðstöðvar Tannverndar.
HH hefur lengi verið í fararbroddi varðandi heilsuvernd á landsvísu. Nýleg reglugerðarákvæði kveða einnig á um forystuhlutverk HH á sviði kennslu-, vísinda- og þróunar. Samtímis hefur HH gert samninga við Háskóla Íslands til að greiða fyrir og efla háskólastarfsemi og menntun heilbrigðisstétta á sviði heilsugæslu.
- Marklýsingarhópur hefur lagt fram áherslur í starfi Þróunarstofu heilsugæslunnar og megin verkefni til tveggja ára.
- Eldri áhersluatriði:
Hlutverk Þróunarstofu heilsugæslunnar er að:
- verða leiðandi í þróun og samræmingu heilsuverndar og heilsugæslustarfs á landsvísu.
- sjá um að skipuleggja ráðstefnur og námskeið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH), sem haldin eru á landsvísu.
- styrkja tengsl við háskóla- og sjúkrastofnanir.
- efna og efla framkvæmd samstarfssamnings HH og Háskóla Íslands í samráði og samvinnu við fulltrúa HH í samstarfsnefndinni.
- hvetja fagfólk HH til þátttöku í rannsóknar-og umbótaverkefnum.
- setja á laggirnar og stýra vísindanefnd sem fjallar um og tekur afstöðu til umsókna varðandi vísindarannsóknir inn HH.
- skipuleggja og halda utan um kennslu og fyrirkomulag námsfólks í samráði við stöðvar HH. Marka þarf stefnu í þeim tilvikum þegar fagfólk sinnir kennslu utan HH.
- hafa yfirsýn yfir gæða og þróunarmál HH.
- hafa yfirsýn yfir og samræma fræðslu og útgáfumál HH.
- hafa umsjón með þarfagreiningu á þjónustu og þjónustukönnunum fyrir HH í samvinnu við stöðvar HH eftir svæðum.
- nýta gagnagrunna HH til uppbyggingar á þekkingu í því markmiði að bæta gæði þjónustu HH.