Mæðravernd
Mæðraverndarsvið vinnur að þróun og uppbyggingu mæðraverndar og stuðlar að samræmingu hennar með því að:
- vera faglegur bakhjarl við heilsugæsluna
- veita heilbrigðisstarfsfólki og almenningi faglega ráðgjöf, fræðslu og stuðning
- vinna að vísindarannsóknum í mæðravernd
- vinna með heilbrigðisyfirvöldum og heilsugæslu landsins að stefnumótun mæðraverndar á landsvísu
Yfirlæknir er Þóra Steingrímsdóttir
Helstu verkefni mæðraverndarsviðs eru:
- innleiðing klínískra leiðbeininga um mæðravernd
- sérfræðiþjónusta fæðinga- og kvensjúkdómalækna á heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins
- símaráðgjöf
- stoðþjónusta, til dæmis viðtöl við verðandi foreldra sem vilja hætta að reykja
- gerð og dreifing fræðsluefnis fyrir fagfólk og almenning
- fæðingafræðslunámskeið
- vísindarannsóknir
- fagrýni
- að halda uppi samskiptum við kvennadeild LSH um sameiginleg málefni er varða mæðravernd
- samstarf við HÍ samkvæmt samstarfssamningi HH og HÍ
- þátttaka í fagráði Landlæknis um mæðravernd
Sjá einnig
Mæðraverndarsvið sér um dreifingu á eftirfarandi bæklingum:
- Áfengi, vímuefni og meðganga
- Matur og meðganga
- Reykingar og meðganga
- Fólat -Fyrir konur sem geta orðið barnshafandi
- Velkomin í meðgönguvernd
- Welcome to antenatal care
Allt fræðsluefni sem var gert á Miðstöð mæðraverndar og er hér á vefnum er fáanlegt á Mæðraverndarsviði. Einnig sér Mæðraverndarsvið um dreifingu á mæðraskrám og fræðsluefni sem Þroskahjálp lét útbúa um meðgöngu og fæðingu.
Bæklingana, annað fræðsluefni og mæðraskrárnar er hægt að panta með því að senda tölvupóst til mm@mm.hg.is eða hringja í síma 585-1400 á opnunartíma, frá kl. 8:20 til 16:15.