Uppeldi
Að vera foreldri er eitt mikilvægasta og mest krefjandi verkefni fullorðinsáranna. Markmið góðs uppeldis er að barnið verði heilbrigt, vel aðlagað, hamingjusamt og hafi til að bera eiginleika og færni sem kemur því til góða í framtíðinni. Nauðsynleg uppeldisfærni er hins vegar hvorki meðfædd né sjálfgefin og eðlilegt er að það taki tíma og fyrirhöfn að tileinka sér þá þekkingu, kunnáttu og hæfni sem til þarf.
Þroska- og hegðunarstöð hefur komið að gerð fjölbreytts fræðsluefnis um uppeldi auk þess að standa fyrir námskeiðum.
Þetta efni og meira um barnið er að finna á fræðslusíðum vefsins.
Meðal annars er þar bæklingurinn Agi, uppeldi og hegðun: minnispunktar fyrir foreldra og aðra uppalendur (pdf-skjal).
Gagnlegir punktar um hegðun ungra barna fjalla í stuttu máli um skilvirkar aðferðir til að hafa áhrif á hegðun.
Einnig er umfjöllun um að kenna börnum að takast á við reiði og mikilvægi samveru barna og foreldra.
Í greininni Uppeldi er forvarnastarf er ítarleg umfjöllun um foreldrahlutverkið og uppeldisfræðslu.