Þroska- og hegðunarstöð (ÞHS) varð formlega til sem sérstök starfseining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við skipulagsbreytingar sem tóku gildi 1. apríl 2009. Vísir að starfseminni hófst þó með tilkomu Greiningarteymis á Heilsuverndarstöðinni árið 1998 en síðan hefur hlutverkið þróast og vaxið töluvert. Stöðin sinnir nú m.a. verkefnum sem áður heyrðu undir Þroska- og hegðunarsvið Miðstöðvar heilsuverndar barna. 

Hlutverk Þroska- og hegðunarstöðvar er að efla lífsgæði og framtíðarhorfur barna, draga úr hamlandi áhrifum hvers kyns frávika í þroska og hegðun og vinna gegn þróun alvarlegri vanda. Nánar um hlutverk Þroska- og hegðunarstöðvar.

Á Þroska- og hegðunarstöð veitir þverfaglegur starfshópur börnum, foreldrum og fagfólki fjölbreytta þjónustu vegna barna á aldrinum 0–12 ára. Helstu þjónustuþættir eru þessir:

  • Frumgreining þroska- og hegðunarfrávika barna undir grunnskólaaldri
  • Nánari greining athyglisbrests, ofvirkni og skyldra raskana hjá leik- og grunnskólabörnum
  • Ráðgjöf, fræðsla og meðferð
  • Gerð og dreifing fræðsluefnis
  • Eftirfylgd í þjónustuúrræði
  • Sérhæfð námskeið fyrir fagfólk og fjölskyldur

Öll þjónusta Þroska- og hegðunarstöðvar er notendum að kostnaðarlausu, að undanskildum námskeiðum, en þar er þátttökugjöldum haldið í lágmarki. Nánari upplýsingar um greiningarþjónustu finnst hér og upplýsingar um tímasetningar námskeiða og skilyrði fyrir þátttöku finnast undir Námskeið.

Upplýsingar og fréttir um starfsemina finnast á forsíðu stöðvarinnar.

Hlutverk Þroska- og hegðunarstöðvar er að efla lífsgæði og framtíðarhorfur barna, draga úr hamlandi áhrifum hvers kyns frávika í þroska og hegðun og vinna gegn þróun alvarlegri vanda með því að...

...vera faglegur bakhjarl heilsugæslunnar á landsvísu við að þróa, leiða og samræma skimun, mat og eftirfylgd á frávikum í þroska og hegðun barna.

... stuðla að því að frávik finnist eins snemma og kostur er svo grípa megi inn í með viðeigandi úrræðum. 

...vera leiðandi innan heilsugæslunnar varðandi fræðilega og hagnýta þekkingu á greiningu, meðferð og ráðgjöf vegna frávika í þroska og hegðun barna. 

...vera öflug þekkingar- og upplýsingaveita á sínu sérsviði með því að sinna þróun, fræðslu, rannsóknum, starfsþjálfun og handleiðslu í samvinnu við háskóla og fagaðila innan og utan heilsugæslunnar. 

...vinna að þróun ráðgjafar- og fræðsluefnis fyrir foreldra og fagfólk um þroska- og hegðunarfrávik barna.

...þróa og útbúa sérhæfð námskeið og önnur þjálfunar- og  meðferðarúrræði fyrir börn með vanda og foreldra þeirra.

...hafa á að skipa þverfaglegum starfshópi með fjölbreyttan bakgrunn, menntun, reynslu og sérþekkingu.  

...sinna þverfaglegri og sérhæfðri 2. stigs þjónustu við fjölskyldur, vegna þroska- og hegðunarfrávika hjá börnum, sem felst í eftirfarandi:

  • frumgreining þegar áhyggjur af þroska eða hegðun ungra barna koma fram hjá fagfólki heilsugæslu, annarri 1. stigs heilbrigðisþjónustu eða hjá sjálfstætt starfandi sérfræðingum.
  • nánari greining fyrir börn á aldrinum 5-10 ára þegar sterkar vísbendingar um athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir í hegðun eða líðan hafa komið fram við formlega frumgreiningu.
  • ráðgjafarviðtöl fyrir foreldra um meðferð og æskilegar uppeldisaðferðir. 
  • lyfjameðferð vegna ADHD og skyldra raskana, eftirfylgd og ráðgjöf fyrir foreldra.
  • leiðbeiningar um viðeigandi þjónustu í skóla og nærumhverfi og myndun eftirfylgdarteymis fyrir barnið. Vísun í önnur meðferðarúrræði eða í nánari greiningu á 3. stigs stofnun.  
  • sérhæfð námskeið fyrir mismunandi hópa foreldra, barna og fagfólks um árangursríkar aðferðir í uppeldi og meðferð til að fyrirbyggja eða draga úr vanda og byggja upp færni.