Hvað er frumgreining?

Hugtakið frumgreining er notað yfir fyrstu formlegu athuganirnar sem gerðar eru á þroskastöðu barna eftir að grunur hefur vaknað um frávik í þroska eða hegðun. Notuð eru stöðluð, sérhæfð próf sem lögð eru fyrir barnið þar sem niðurstöður um ástand eða árangur eru bornar saman við meðaltöl jafnaldra.

Grunur eða vísbendingar um frávik koma t.d. fram við hefðbundnar skoðanir og skimanir í ung- og smábarnavernd. Einnig geta vaknað áhyggjur hjá foreldrum um að eitthvað sé að í þroska barns og ætti þá að leita fyrst til ungbarnaverndar, heimilislæknis eða barnalæknis. Vakni grunur hins vegar innan skóla barnsins ættu kennarar að byrja á að leita til eigin ráðgjafarþjónustu (skólaskrifstofa eða þjónustumiðstöð). Almennt er þörf á tilvísun til stofnana sem sinna frumgreiningu.

Tilgangur frumgreiningar er að skera úr um tilvist frávika, skilgreina hvers eðlis þau eru og meta þörf á sérstakri íhlutun. Einnig er metið hvort þörf er á nánari greiningu hjá sérhæfðari aðilum. Mikilvægt er að finna frávik eins snemma á ævi barnsins og unnt er því líkur á góðum árangri úrræða aukast fyrr sem þau hefjast. Vitneskja um hvers eðlis vandi barnsins er gefur forspá um framtíðarhorfur, eykur skilning á þörfum þess og er leiðbeinandi um hvers konar þjálfun eða önnur íhlutun gagnist best. 

Í kjölfar frumgreiningar er veitt ráðgjöf í samræmi við niðurstöður og hlutast til um útvegun viðeigandi úrræða. Íhlutun fer eftir eðli og umfangi vandans, en getur t.d. verið stuðningur eða sérkennsla í skóla, meðferð eða sértæk færniþjálfun fyrir barn og/eða ráðgjöf og fræðsla fyrir foreldra. 

Upplýsingar um frumgreiningu sem býðst á Þroska- og hegðunarstöð fást undir Greiningarþjónusta