Iðjuþjálfun
Markmiðið með iðjuþjálfun er að efla færni, heilsu og vellíðan einstaklingsins í samræmi við þarfir, getu og langanir hans þannig að hann sé:
- eins sjálfbjarga og mögulegt er við þá iðju sem honum er mikilvæg
- öruggur í daglegu umhverfi sínu
- virkur þátttakandi í samfélaginu
Þörf er á iðjuþjálfun þegar fullorðnir ná ekki að sinna daglegri iðju á fullnægjandi hátt. Færni við iðju getur breytst í kjölfar sjúkdóms eða annars áfalls. Fólk getur af þessum sökum átt erfitt með að annast sig og sína, vinna heimilisstörf, stunda atvinnu utan heimilis eða njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Iðjuþjálfun er sniðin að þörfum notandans. Hann forgangsraðar iðjuvanda sínum og vinnur síðan markvisst að aukinni þátttöku og/eða færni í samvinnu við iðjuþjálfa. Til að efla færni beita iðjuþjálfar fræðslu, kennslu, ráðgjöf, aðlögun umhverfis, útvegun hjálpartækja og beinni þjálfun.
Þjónusta iðjuþjálfa hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Iðjuþjálfi fer á heimili einstaklinga og metur meðal annars þörf fyrir hjálpartæki og aðstoðar þá við að sækja um endurnýjun á hjálpartækjum til Sjúkratrygginga Íslands.
Guðrún K. Hafsteinsdóttir iðjuþjálfi sinnir einstaklingum 18 ára og eldri.
Hún er til húsa að Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Síminn er 585-1300.
Heimilislæknar og annað fagfólk getur sótt um iðjuþjálfun. Umsókn skal senda í gegnum sjúkraskrárkerfið Sögu. Þeir sem hafa ekki aðgang að Sögu geta sent útfyllt umsóknareyðublað (pdf-skjal) í pósti.
Innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins starfa iðjuþjálfar einnig hjá Geðheilsu - eftirfylgd/iðjuþjálfun, Meðferðarteymi barna Heilsugæslunni Grafarvogi og Þroska- og hegðunarstöð.