Slysavarnir á meðgöngu f. 16. viku
Slysavarnafræðsla á meðgöngu fyrir 16. viku
Mikilvægt er að huga vel að öryggi konunnar og ófædda barnsins á meðgöngu, en algengustu slysin hjá ófrískum konum eru fallslys. Ekki er síður mikilvægt að huga að öryggi þeirra í bílum.
Eflaust finnst mörgum verðandi foreldrum framandi að hugsa um slysavarnir barna áður en þau fæðast. En það er afar mikilvægt að huga að þeim samhliða öðrum undirbúningi fyrir fæðingu barnsins. Á þessum tíma eru foreldrar einmitt að kaupa eða fá lánaðan ýmsan búnað s.s vöggu, rúm, skiptiborð, barnabílstól og fleira. Þó að gerðar séu kröfur til framleiðanda um að þessi búnaður sé öruggur þá er samt sem áður mikilvægt að vita hvað þarf að hafa í huga við val á nýjum búnaði eða hvernig á að fara yfir notaðan og gamlan búnað til að tryggja að hann sé öruggur.
Fræðsla um fall og öryggi ófrískar konu í bíl þarf að fara fram fyrir 16. viku meðgöngu
Fallslys á meðgöngu og varnir gegn þeim
Fall eða hrösun er orsök 60% slysa á meðgöngu. Helstu áverkar eru brot, tognanir, sár, skurðir og höfuðhögg. Áverkarnir eru misalvarlegir. Flestir eru þó minniháttar. Ófædda barnið verður sjaldnast fyrir skaða, en mikilvægt er að barnshafandi konur fari varlega og geri sér grein fyrir því að þær þurfa að huga að öryggi barnsins líka.
Mikilvægt er að þær forðist allt óþarfa klifur t.d. upp á húsgögn og í lausa stiga. Fara þarf vel yfir heimilið og kanna hvort einhverjir hlutir séu á gönguleiðum sem hægt er að detta um t.d. fótskemlar, rafmagnssnúrur o.fl. Mikilvægt er að ekki liggi lausir munir í stigum. Þegar gengið er í stigum er mikilvægt að halda sér alltaf í handriðið. Nauðsynlegt er að hafa næturljós á gönguleiðinni vegna tíðari klósettferða að nóttu til. Síður fatnaður getur verið varasamur t.d. þegar farið er í stiga.
Skófatnaður skiptir einnig miklu máli. Mikilvægt er að velja þægilega og stöðuga skó með stömum sólum. Þar sem algengt er að barnshafandi konur fái bjúg á fætur má gera ráð fyrir því að þær þurfi að nota mismunandi skóstærðir á meðgöngu. Hætta er á að þær grípi þá til óheppilegs skófatnaðar, sem eru kannski of víður og losaralegur eða með sleipum sólum (t.d. gömlu góðu slitnu inniskórnir eða töfflurnar). Í hálku er mikilvægt að nota góða og stama skó eða hálkuhlífar.
Öryggi í bíl á meðgöngu
Oft vakna spurningar um öryggi ófædds barns lendi þunguð kona í umferðarslysi. Fagfólk er stundum spurt að því hvort öryggisbelti geti skaðað ófætt barn í árekstri. Ef beltið situr rétt á líkama konunnar er ekki hætta á því.
Rétt notkun bílbeltis fyrir þungaða konu
- Efra beltið kemur yfir öxlina og fer niður á milli brjóstanna.
- Neðra beltið er haft undir (kúlunni) og á það að hvíla yfir lærum eða eins neðarlega og hægt er á mjaðmakambi. Það er síðan spennt og þess gætt að það hvíli örugglega þétt að líkamanum.
Ef kona er í þykkum fatnaði, kápu eða jakka getur verið erfitt fyrir hana að halda beltinu á réttum stað. Það getur því hjálpað til að hún sé í hlýrri flík sem fellur þétt að líkamanum þegar hún ferðast í bíl.
Meðgöngubílbelti, eða beltahaldari, er búnaður sem hægt er að nota til að halda bílbeltinu á réttum stað á líkamanum. Meðgöngubílbelti er ekki öryggisbúnaður heldur einungis notaður til þæginda fyrir konuna.
Ef bílbelti er of stutt þannig að konan geti ekki spennt það á sig getur hún reynt að færa sætið aðeins aftur. Ef sætinu er ýtt aftur þarf að huga að því að staðsetning spegils hefur breyst og því þarf að stilla hann á ný. Mikilvægt er að færa sætið ekki það langt aftur að viðkomandi eigi í erfiðleikum með að ná niður á bremsur og kúplingu en það eitt getur truflað akstur og valdið óhöppum. Ef þetta dugar ekki er ekki óhætt að hún keyri.
Sem farþegi getur þunguð kona setið í framsæti þrátt fyrir að þar sé öryggispúði í mælaborði. Mikilvægt er að hún stilli sætið eins langt aftur og hægt er en gæti þess um leið að beltið passi utan um hana. Ef beltið nær ekki verður hún að finna önnur ráð því hún má ekki vera laus í bílnum. Ekki er til búnaður til að lengja beltin. Möguleiki er á að setja sig í samband við bílaumboðið til að kanna hvort hægt sé að fá lengri belti í bílinn. Þetta á sérstaklega við um nýja og nýlega bíla
Áhrif bílslyss á ófætt barn
Lendi þunguð kona í bílslysi eru bæði konan og ófædda barnið 70% öruggara ef bílbeltið er rétt spennt. Helstu ástæður þess ef barn deyr í móðurkviði í umferðarslysum er fylgjulos. Rannsóknaraðilar hafa velt því fyrir sér af hverju þetta gerist. Talið er að legið gefi vel eftir og þoli ákveðin sveigjanleika en fylgjan ekki, þannig að ef ófrísk kona lendir í hörðum árekstri getur fylgjan losnað frá leginu.
Gátlisti ljósmóður/hjúkrunarfræðings fyrir fræðslu til verðandi foreldra
Verðandi foreldrar eru mjög uppteknir af því að gera allt rétt og mjög opnir fyrir öllum ráðleggingum. Það er því mikilvægt að ljósmæður, hjúkrunarfræðingar og læknar, sem sinna fjölskyldunni, nýti sér það og gefi þeim skýrar og nákvæmar leiðbeiningar um öryggi konunnar.
Öryggi þungaðrar konu
Mikilvægt er að ræða við konuna um að hún þurfi að huga vel að öryggi sínu og um leið að öryggi ófædda barnsins. Fræddu hana um að fall sé algengasta slys á meðgöngu.
Slysavarnir á meðgöngu
Farðu yfir helstu atriði um öryggi verðandi móður.
Öryggi þungaðrar konu í bíl
Mikilvægt er að lögð sé á það áhersla við konuna að hún noti alltaf öryggisbelti því það verndi bæði hana og ófædda barnið hennar. Gott er að spyrja hana hvernig gangi að spenna bílbeltið. Ef það eru vandamál gefðu henni viðeigandi ráðleggingar. Kanna þarf hvort það sé virkur öryggispúði í stýri bílsins. Ef svo er bentu henni á hætturnar.
Helstu aðferðir við fræðslu:
- Einstaklingsfræðsla. Þegar fræðsluefni er afhent er mikilvægt að fara yfir innihald þess lið fyrir lið, því það er kannski í eina skiptið sem verðandi foreldrar fara yfir það.
- Hópfræðsla. Mikilvægt er að ljósmæður, hjúkrunarfræðingar og læknar fræði foreldra utan heilsugæslunnar t.d. á námskeiðum fyrir verðandi foreldra, á foreldranámskeiðum og „mömmumorgnum.“
Flestir verðandi foreldrar verða varir við það að ættingar og vinir vilja gefa þeim góð ráð varðandi umönnun barnsins. Þessi ráð hafa mikil áhrif á þá en þeir verða að átta sig á því að þessi ráð eiga ekki endilega við í dag þó þau hafi virkað vel fyrir nokkrum árum. Tímarnir hafa breyst, vitneskjan aukist og í dag er hugað meira að öryggi barna. Þar að auki er til mjög góður öryggisbúnaður fyrir börn sem auðvelt er að koma fyrir og nota.
