Ungbarnavernd er í höndum hjúkrunarfræðinga og lækna á heilsugæslustöðinni. Markmið ungbarnaverndarinnar er að fylgjast með og stuðla að heilbrigðum vexti og þroska barna að skólaaldri og velferð fjölskyldunnar í heild.
Hlutverk ungbarnaverndar er einnig að leiðbeina og gefa ráð við brjóstagjöf, næringu, umönnun og uppeldi svo og leita leiða til að leysa vandamál sem upp geta komið.

Ungbarnaverndin hefst fljótlega eftir að komið er heim af fæðingarstofnun með heimsóknum hjúkrunarfræðinga. Fjöldi vitjana fer eftir þörfum og aðstæðum fjölskyldunnar hverju sinni.
Fyrsta skipulagða lækniskoðun ungbarnsins inni á heilsugæslustöðinni er við 6 vikna aldur og fyrstu bólusetningar eru framkvæmdar við 3ja mánaða aldur.
Foreldrum er alltaf velkomið að hafa samband við hjúkrunarfræðinga umfram þessar skipulögðu skoðanir.

Vinsamlegast hafið samband við skiptiborð í síma 513-2100 ef óskað er nánari upplýsinga um ungbarnaverndina.

AldurHver skoðarHvað er gert
< 6 vikna  Hjúkrunarfr.  Heimavitjanir 
6 vikna  Hjúkrunarfr. og læknir   Skoðun 
9 vikna  Hjúkrunarfr.  Heimavitjun eða skoðun á heilsugæslustöð 
3 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
5 mánaða  Hjúkrunarfr.  Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
6 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C 
8 mánaða  Hjúkrunarfr.  Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C 
10 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun 
12 mánaða  Hjúkrunarfr.  Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
18 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun og bólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu, PEDS Mat foreldra á þroska barna 
2 1/2 árs  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun 
3 ára  Tannlæknir  Forvarnarskoðun - tanneftirlit. Ókeypis skoðun hjá tannlæknum sem vinna í umboði Sjúkratrygginga Íslands. Nauðsynlegt að skoðun fari fram áður en barnið nær fjögurra ára aldri.  
4 ára  Hjúkrunarfr.  Skoðun, sjónpróf, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki og stífkrampa í einni sprautu