Rannsóknastofan er opin frá kl. 8:00 til 12:00 alla virka daga.

Opnunartími fyrir blóðtöku og móttöku annarra sýna er frá kl. 8:00 til 10:00.

Á stöðinni eru tekin blóðsýni og þvagsýni sem eru annaðhvort send til rannsóknar á Landspítala Háskólasjúkrahús eða skoðuð á stöðinni.
Allir sem þurfa að fara í blóðtöku eiga kost á blóðsýnatöku á stöðinni eða að fara með tilvísun á rannsóknarstofu Landspítala Háskólasjúkrahúss.

Lungnaþolspróf, hjartalínurit og heyrnarpróf eru framkvæmd í hjúkrunarmóttöku samkvæmt beiðni frá lækni.