Heilsugæslu í skólum hverfisins er sinnt af hjúkrunarfræðingum og læknum stöðvarinnar. Hjúkrunarfræðingar hafa fastan viðverutíma í skólunum.

Í skólaheilsugæslu er meðal annars veitt eftirfarandi þjónusta:

  • Reglulegar heilsufarsathuganir og ónæmisaðgerðir
  • Þjónusta við langveik og fötluð börn
  • Heilbrigðisfræðsla, forvarnir og ráðgjöf
  • Eftirlit með húsakynnum og aðbúnaði

Auk þess sinna hjúkrunarfræðingar í skólunum sjúkra- og slysaþjónustu að vissu marki á skólatíma.

Skólahjúkrunarfræðingar vinna að geðvernd með starfsfólki skólanna, til dæmis þegar bregðast þarf við einelti, áföllum eða hegðunarerfiðleikum.