Heilsugæslan Miðbæ er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna  íbúum í "Gamla miðbænum" vestan Snorrabrautar og norðan Hringbrautar.

Starfsemi stöðvarinnar er fjölþætt þó mest fari fyrir lækningum, ungbarna- og mæðravernd. Tekist er á við öll heilsufarsleg vandamál og reynt að leysa úr þeim. Reynt er að veita samfellda þjónustu með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga.

Ef á þarf að halda er veitt ráðgjöf við val á sérfræðiþjónustu. Smáslysaþjónusta er í boði enda er á stöðinni slysa- og aðgerðastofa, þar sem auðvelt er að búa um og sauma sár, fjarlægja bletti og gera ýmsar fleiri smáaðgerðir. Bráðatilvik hafa alltaf forgang.

Þeir sem sækja þjónustu á stöðina eiga rétt á þægilegu viðmóti og að starfsfólkið sýni þeim virðingu, skilning og þolinmæði. Til þess að samskiptin gangi vel upp þurfa skjólstæðingar stöðvarinnar að reyna að mæta starfsfólkinu á sama hátt.

Yfirlæknir er Sigríður Dóra Magnúsdóttir
Yfirhjúkrunarfræðingur er Jóhanna Eiríksdóttir
Skrifstofustjóri er Guðrún J. Sigþórsdóttir
Þeir sem sækja þjónustu á stöðina skulu hafa samband við yfirlækni eða yfirhjúkrunarfræðing ef þeir vilja koma á framfæri kvörtunum eða ábendingum varðandi starfsemina eða starfsfólkið.

Heilsugæslustöðin er kennslustofnun og þar starfa oft námslæknar. Ýmist eru það læknar sem eru að ljúka svokölluðu "kandidatsári" eða læknar í sérfræðinámi í heimilislækningum. Auk þess koma á hverju ári læknanemar, hjúkrunarnemar og læknaritaranemar í verklegt nám á stöðina.

Skjólstæðingar hafa að sjálfsögðu fullan rétt til að biðjast undan þátttöku í kennslunni.

Allt starfsfólk stöðvarinnar er samkvæmt lögum og ráðningarsamningum bundið þagnarheiti um allt er varðar hagi þess fólks sem það sinnir.