Á heilsugæslustöðinni starfa 6 heimilislæknar, sem allir eru sérfræðingar í heimilislækningum.

Læknarnir starfa samkvæmt tímabókunarkerfi þar sem viðtalstímar eru pantaðir fyrirfram. Hver viðtalstími er 15 til 20 mínútur. Oftast fæst tími innan 1 - 2ja daga. Nauðsynlegt er að panta tíma nema um skyndileg veikindi eða slys sé að ræða. Í áríðandi tilvikum er alltaf hægt að ná til læknis eða hjúkrunarfræðings samdægurs.

Heimilislæknar sinna almennri móttöku, bráðaþjónustu, ungbarnaeftirliti, mæðravernd og skólaheilsugæslu. Heimilislæknarnir fara í vitjanir í heimahús eftir mati á aðstæðum hverju sinni.

Námslæknar eru starfandi á stöðinni. Þeim er leiðbeint af sérfræðingum stöðvarinnar og leita til þeirra við lausn vandamála, þegar þörf krefur.

Skjólstæðingum er ráðlagt að tala við sinn heimilislækni um hvort samskipti í tölvupósti séu möguleg.
Tölvupóstsendingar eru á ábyrgð sendanda. Hafa ber í huga að tölvupóstur er ekki öruggur boðskiptamiðill og ekki hægt að tryggja með öllu persónuvernd í slíkum samskiptum.

Heimilislæknarnir á stöðinni eru sérfræðingar í heimilislækningum og hafa lokið sérnámi líkt og aðrir sérfræðingar í læknastétt.
Einstaklingar og fjölskyldur eiga rétt á að hafa sinn heimilislækni.

Hlutverk heimilislæknisins er að hafa yfirsýn yfir heilsufar einstaklinga og fjölskyldna, veita samfellda þjónustu og vera tengiliður við heilbrigðisþjónustuna.
Heimilislæknirinn greinir og meðhöndlar heilsuvanda viðkomandi og veitir  markvissa ráðgjöf ef þörf er á frekari hjálp í heilbrigðiskerfinu s.s. sérfræðiþjónustu.

Heimilislæknirinn gætir fyllsta trúnaðar og gagnkvæmt traust  þarf að ríkja milli hans og sjúklinga.

Eftirfarandi heimilislæknar eru starfandi við stöðina:

  • Ásmundur Magnússon
  • Elínborg Bárðardóttir
  • Ína Kolbrún Ögmundsdóttir
  • Máni Fjalarsson
  • Sigríður Ýr Jensdóttir
  • Sigríður Dóra Magnúsdóttir, yfirlæknir

Námslæknar eru starfandi á stöðinni. Þeim er leiðbeint af sérfræðingum stöðvarinnar og leita til þeirra við lausn vandamála, þegar þörf krefur.


 

Læknar stöðvarinnar skrifa gjarnan tilvísanir til sérgreinalækna.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.

Ef upp koma hnökrar í samskiptum skjólstæðings og viðkomandi heimilislæknis þá hvetjum við fólk til að ræða það fyrst við sinn heimilislækni.

Ef sjúklingur treystir sér ekki til að leita til síns heimilislæknis áfram og óskar því eftir að skipta um lækni þarf að bera upp erindið við yfirlækni  stöðvarinnar og skýra málavöxtu. Reynt verður eftir föngum að útvega sjúklingum annan lækni innan stöðvarinnar þegar svo ber undir.

Heimilislæknirinn getur sagt upp skjólstæðingi ef trúnaðarbrestur hefur orðið.