Um stöðina
Heilsugæslan Hlíðum er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum Hlíðasvæðis er takmarkast af Snorrabraut og Kringlumýrarbraut og sjóa á milli.
Yfirlæknir er Stefán Finnsson
Yfirhjúkrunarafræðingur er Eva K. Hreinsdóttir
Skrifstofustjóri er Kristjana Sigmundsdóttir
Yfirhjúkrunarafræðingur er Eva K. Hreinsdóttir
Skrifstofustjóri er Kristjana Sigmundsdóttir
Þeir sem sækja þjónustu á stöðina skulu hafa samband við yfirlækni eða yfirhjúkrunarfræðing ef þeir vilja koma á framfæri kvörtunum eða ábendingum varðandi starfsemina eða starfsfólkið.
Heilsugæslustöðin er kennslustofnun og þar starfa oft námslæknar. Ýmist eru það læknar sem eru að ljúka svokölluðu "kandidatsári" eða læknar í sérfræðinámi í heimilislækningum.
Auk þess koma á hverju ári læknanemar, hjúkrunarnemar og læknaritaranemar í verklegt nám á stöðina.
Skjólstæðingar hafa að sjálfsögðu fullan rétt til að biðjast undan þátttöku í kennslunni.
Allt starfsfólk stöðvarinnar er samkvæmt lögum og ráðningarsamningum bundið þagnarheiti um allt er varðar hagi þess fólks sem það sinnir.