Hjúkrunarmóttakan er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00 í síma 585-2300. Þar er hægt að bóka tíma en einnig má leita til stöðvarinnar án þess að gera boð á undan sér. Læknir er alltaf á bakvakt í móttökunni. 

Boðið er upp á símaráðgjöf. Tekin eru niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.

Hjúkrunarþjónusta

Starfshættir hjúkrunar innan stöðvarinnar hafa þróast undanfarin ár með skipulagðri viðleitni starfsfólks til að bæta árangur, vinnubrögð og hagkvæmni í þjónustunni til að koma til móts við þarfir, óskir og væntingar þeirra sem leita til stöðvarinnar.

Markmið Heilsugæslunnar Hlíðum er að þjónusta stöðvarinnar verði  fyrsta val  íbúa svæðisins sem þurfa að leita  til heilbrigðiskerfisins.  Heilsugæslan miðar að því að bæta heilbrigði og auka lífsgæði fólks með því að sinna frumþjónustu sem er undirstöðuþátturinn í heilsuvernd.

Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður á heilsugæslustöðinni starfa við:

Hjúkrunar- og ljósmæðranemar eru oft starfandi á stöðinni. Þeim er leiðbeint af hjúkrunarfrræðingum og ljósmæðrum stöðvarinnar og leita til þeirra við lausn vandamála, þegar þörf krefur.

Hjúkrunarmóttakan er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00 í síma 585-2300. Þar er hægt að bóka tíma en einnig má leita til stöðvarinnar án þess að gera boð á undan sér. Læknir er alltaf á bakvakt í móttökunni.

Boðið er upp á símaráðgjöf. Tekin eru niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.

Í hjúkrunarmóttöku er veitt eftirfarandi þjónusta:

  • ráðgjöf
  • símaþjónusta
  • sáraskiptingar
  • bólusetningar og sprautugjafir
  • skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi

Framkvæmdar eru eftirfarandi rannsóknir og mælingar:

  • mælingar á blóðþrýstingi
  • lungnaþolspróf (öndunarmælingar)
  • hjartalínurit
  • einfaldar blóð- og þvagrannsóknir

 


 

Heilsugæsla eldri borgara er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00. 

Símaráðgjöf og tímapantanir í síma 5852300.

Með fjölgun aldraðra er mikilvægt að gera fyrirbyggjandi aðgerðum hátt undir höfði til að viðhalda heilbrigði og ekki síður að meðhöndla sjúkdóma og hrörnun í tíma til þess að einstaklingurinn haldi sem lengst líkamlegri, andlegri og félagslegri getu.

Hlutverk hjúkrunarfræðingsins í heilsugæslu eldri borgara er í megindráttum að veita leiðsögn um heilbrigt líferni og " að efla andann". Einnig að grípa inn í áhættuþætti sem eru til staðar og að kenna rétt viðbrögð við hugsanlegum áhættuþáttum hjá viðkomandi.

Markmið þjónustunnar er að styðja eldri borgara til að búa sem lengst heima með því að veita stuðning, ráðgjöf og leiðbeiningar við hæfi.

Hjúkrunarfræðingurinn sem sinnir heilsugæslu eldri borgara er tengiliður stöðvarinnar við Heimaþjónustu Reykjavíkur.