Á stöðinni eru framkvæmdar eftirfarandi bólusetningar:

  • Almennar bólusetningar
  • Ferðamannabólusetningar
  • Inflúensubólusetningar
  • Lungnabólgubólusetningar
  • Ungbarnabólusetningar
  • Skólabólusetningar

Inflúensubólusetningar hefjast 8. október 2012.

Bólusetningar eru frá kl. 8:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 alla virka daga. Ekki þarf að panta tíma.

Á haustin fer fram á stöðinni bólusetning gegn inflúensu hjá 60 ára og eldri og þeim sem haldnir eru langvinnum sjúkdómum.

Allir sem fá bólusetningu þurfa að greiða komugjald til stöðvarinnar, en þeir sem eru 60 ára og eldri, öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum, heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að framan og þungaðar konur fá bóluefnið frítt.

Munið að framvísa afsláttar- og/eða örorkuskírteinum við komuna.

Mikilvægt er fyrir alla að hafa örugga grunnbólusetningu gegn mænusótt, stífkrampa og barnaveiki.

Endurtaka þarf þessar bólusetningar á 10 ára fresti ef hætta er á smiti.

Allar almennar ferðamannabólusetningar eru framkvæmdar á stöðinni.

Upplýsingar um bólusetningar vegna ferðalaga til útlanda fást hjá hjúkrunarfræðingum og læknum stöðvarinnar.

Mikilvægt er að hafa samband með góðum fyrirvara fyrir ferð.

Öllum 60 ára og eldri og þeim sem haldnir eru langvinnum sjúkdómum  er boðið upp á lungnabólgubólusetningu. Bólusett er á 10 ára fresti.

AldurVið hverju er bólusett
3 mán.  kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu.  
5 mán.  kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
6 mán  Meningókokkum C 
8 mán.  Meningókokkum C 
12 mán.  kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
18 mán.  mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu 
4 ára  kíghósta, barnaveiki og stífkrampa í einni sprautu 

Bólusetningar sem fara fram í skólunum eru:

  • 7. bekkur (12 ára) - Endurbólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum.
  • 9. bekkur (14 ára) - Endurbólusetning gegn mænusótt, barnaveiki, stífkrampa og kíghósta
  • Bólusetningar barna með ófullkomna bólusetningu.