Heilsugæslu í skólum hverfisins er sinnt af hjúkrunarfræðingum og læknum stöðvarinnar. Hjúkrunarfræðingar hafa fastan viðverutíma í skólunum.

Í skólaheilsugæslu er meðal annars veitt eftirfarandi þjónusta:

  • Móttaka fyrir nemendur.
  • Heilbrigðisfræðsla og ráðgjöf .
  • Ráðgjöf til kennara og starfsfólks skóla.
  • Reglulegar heilsufarsathuganir og ónæmisaðgerðir.

Auk þess sinna hjúkrunarfræðingar í skólunum sjúkra- og slysaþjónustu að vissu marki á skólatíma.