Við stöðina starfa hjúkrunarfræðingar, sem sjá um ung- og smábarnavernd, heilsugæslu í skólum, heimahjúkrun fyrir skjólstæðinga Heilsugæslunnar Garðabæ, almenna heilsuvernd, símaráðgjöf og móttöku sjúkra og slasaðra. Mæðraverndin er í umsjá ljósmóður / hjúkrunarfræðings.
Hjúkrunarfræðingar vinna í nánu sambandi við lækna stöðvarinnar.
Í vakthafandi hjúkrunarfræðing er hægt að hringja frá kl. 8:00 til 15:00 í gegnum skiptiborð heilsugæslustöðvarinnar, síma 520 1800.