Heilsugæslan Efra-Breiðholti er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum Efra-Breiðholts. Stöðin tók til starfa 1978 í Asparfelli 12 og flutti að Hraunbergi 6 í apríl 1990.

Starfsemi stöðvarinnar er fjölþætt þó mest fari fyrir lækningum, ungbarna- og mæðravernd. Tekist er á við öll heilsufarsleg vandamál og reynt að leysa úr þeim. Reynt er að veita samfellda þjónustu með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga.

Ef á þarf að halda er veitt ráðgjöf við val á sérfræðiþjónustu. Smáslysaþjónusta fer hér fram enda er á stöðinni slysa- og aðgerðastofa, þar sem auðvelt er að búa um og sauma sár, fjarlægja bletti og gera ýmsar fleiri smáaðgerðir.
Bráðatilvik hafa alltaf forgang.

Þeir sem sækja þjónustu á stöðina eiga rétt á þægilegu viðmóti og að starfsfólkið sýni þeim virðingu, skilning og þolinmæði. Til þess að samskiptin gangi vel þurfa skjólstæðingar stöðvarinnar að reyna að mæta starfsfólkinu á sama hátt.

  • Yfirlæknir: Þórður G. Ólafsson
  • Yfirhjúkrunarfræðingur: Hanna María Kristjónsdóttir
  • Skrifstofustjóri: Svanhildur Jóhannesdóttir 

Þeir sem sækja þjónustu á stöðina skulu hafa samband við yfirlækni eða yfirhjúkrunarfræðing ef þeir vilja koma á framfæri kvörtunum eða ábendingum varðandi starfsemina eða starfsfólkið.

Einnig er hægt að skrifa kvartanir eða ábendingar á blað og setja í póstkassa á biðstofunni.

Heilsugæslustöðin er kennslustofnun og þar starfa oft námslæknar. Ýmist eru það læknar sem eru að ljúka svokölluðu "kandidatsári" eða læknar í sérfræðinámi í heimilislækningum.

Auk þess koma á hverju ári læknanemar, hjúkrunarnemar og læknaritaranemar í verklegt nám á stöðina.

Skjólstæðingar hafa að sjálfsögðu fullan rétt til að biðjast undan þátttöku í kennslunni.

Allt starfsfólk stöðvarinnar er samkvæmt lögum og ráðningarsamningum bundið þagnarheiti um allt er varðar hagi þess fólks sem það sinnir.