Almennar reglur
Æskilegt er að þvagsýni sé tekið við fyrstu þvaglát að morgni. Mögulegt er að taka það seinna um daginn en þá skulu helst vera meira en 2 tímar liðnir frá síðustu þvaglátum. 
Hæfilegt magn er 10-50 ml. Sjá mælistiku á glasi. 
Sýni skal geymt í kæliskáp þar til farið er með það í rannsókn. 
Mikilvægt er að koma sýninu sem fyrst til rannsóknar. 
Merkið ílátið með nafni, kennitölu, dagsetningu og tíma sem sýnið er tekið.  
Beiðni um rannsókn þarf alltaf að fá hjá lækni eða hjúkrunarfræðingi.
 
Tekið er við sýnum á heilsugæslustöðinni frá kl. 8:00 til 11:30 í afgreiðslu. Eftir þann tíma getur heimilislæknir/hjúkrunarfræðingur ákveðið móttöku sýnis. Einnig er hægt að afhenda sýni á Rannsóknarstofu sýklafræðideildar á Barónsstíg að höfðu samráði við heimilislækni/hjúkrunarfræðing.
 
Miðbunuþvag
Taka skal miðbunuþvag þegar tilgangur rannsóknarinnar er ræktun baktería.
Miðbunuþvag þýðir að byrja skal að kasta þvagi áður en sýni er tekið, þannig að fyrsta bunan komi ekki með í sýnið.
 
Taka skal miðbunuþvag, eftir að svæðið umhverfis þvagrásina hefur verið hreinsað vel með volgu vatni. Notið ekki sápu. Fyrir konur gildir sérstaklega að gæta þess vandlega að strjúka framan frá og aftur til þess að koma í veg fyrir að sýklar frá endaþarmi berist í þvagrás. Einnig er gott að halda sundur skapabörmum ef mögulegt er. Ef konur eru með miklar tíðablæðingar eða útferð getur verið gott ráð að nota tíðatappa. Greinið lækni ykkar frá þessu svo hann geti skráð þessar upplýsingar í beiðninni sem fylgir sýninu á sýkladeild. Karlmenn ættu að draga upp forhúð áður en sýni er tekið.
 
Gætið þess að yfirfylla ekki ílátið, en nægilegt magn fyrir almenna ræktun er 10 ml. Sjá mælistiku á þar til gerðu glasi.
 
Hjá börnun getur oft verið erfitt að taka miðbunuþvag og skal þá taka sýnið beint.
 
Fyrsta þvag
Þegar tilgangur þvagrannsóknarinnar er að athuga hvort um sé að ræða klamýdíusýkingu er tekið svokallað fyrsta þvag. Þetta þýðir að fyrsta bunan fer beint í þvagprufuglas.