Fjölskyldum sem búsettar eru á þjónustusvæði stöðvarinnar eða sem eru skráðar hjá heimilislæknum á stöðinni býðst þjónusta á meðgöngu. Markmiðið er að stuðla að farsælli meðgöngu með faglegri umönnun, fræðslu og stuðningi.

Æskilegt er að þungaðar konur komi í fyrstu skoðun 8-10 vikum eftir síðustu blæðingar. Velkomið er að hafa samband við lækni eða ljósmóður fyrr ef óskað er og mælt er með því ef um langvinna sjúkdóma er að ræða eða lyfjatöku að staðaldri.

Fjöldi mæðraskoðana fer eftir aðstæðum, algengt er 8-10 skipti. Faðir eða annar stuðningsaðili og eldri systkini eru velkomin með.

Virka daga frá kl. 8:00 til 16:00 er hægt að ná sambandi við ljósmóður í síma 513-1550.

Móttökuritarar taka niður nafn, kennitölu og símanúmer og haft verður samband eins fljótt og hægt er.

Þjónusta á meðgöngu:

  • Skoðanir og viðtöl
  • Blóð- og þvagrannsóknir
  • Leiðbeiningar og fræðsla til foreldra
  • Fósturgreining með ómun (fer fram á kvennadeild Landsspítala Háskólasjúkrahúss)

Á Þróunarstofu heilsugæslunnar eru í boði námskeið um undirbúning fæðingar og fleiri námskeið.

Fósturrannsóknir og sónarskoðanir eru gerðar á Fósturgreiningadeild LSH. Þær rannsóknir sem standa öllum til boða eru:

  • Hnakkaþykktarmæling og líkindamat á litningagöllum við 11-14 vikna meðgöngu. Þeirri rannsókn fylgir blóðprufa þar sem athugaðir eru meðgöngutengdir lífefnavísar í blóði móðurinnar. Þessa rannsókn kosta foreldrar sjálfir. Nánari upplýsingar eru á vef Landspítala-háskólasjúkrahús.
  • Ómskoðun við 20 vikna meðgöngu þar sem fóstrið er skoðað með tilliti til byggingagalla, metin meðgöngulengd og greind staðsetning fylgjunnar.
  • Ómskoðanir síðar á meðgöngu eru einungis gerðar meti læknir eða ljósmóðir að þess gerist þörf.