Læknisþjónusta
Á heilsugæslustöðinni starfa nú sjö sérfræðingar í heimilislækningum.
Læknarnir hafa bókaða tíma og er hver tími venjulega 15 mínútur. Nauðsynlegt er að panta tíma nema um skyndileg veikindi eða slys sé að ræða. Þar sem mikið álag er á lækna stöðvarinnar, vegna vaxandi skráningar á stöðina án fjölgunar heimilislækna, getur verið töluverð bið eftir venjulegum tíma
Allir læknar hafa nokkra svokallaða samdægurstíma. Hjúkrunarfræðingar á vakt reyna að forgangsraða í þá tíma brýnni vandamálum. Í áríðandi tilvikum er alltaf hægt að fá þjónustu og ef heimilislæknirinn er ekki viðlátinn sinnir vakthafandi læknir/hjúkrunarfræðingur erindinu.
Einn læknir er svo á síðdegisvakt kl. 16.00-18.00 virka daga og þarf ekki að panta tíma.
Heimilislæknar stöðvarinnar fara í vitjanir til þeirra sem af heilsufarsástæðum geta ekki komið til viðtals á stofu. Læknisvitjanir utan hverfis geta verið erfiðleikum bundnar.
Í neyðartilfellum skal hringja í 112.
Námslæknar eru oft starfandi á stöðinni. Þeim er leiðbeint af sérfræðingum stöðvarinnar og leita til þeirra við lausn vandamála, þegar þörf krefur. Barnalæknir tekur þátt í ungbarnavernd stöðvarinnar.
Ekki er gert ráð fyrir að læknar stöðvarinnar svari tölvupósti nema samið sé um það við viðkomandi lækni. Tölvupóstur er ekki öruggur boðskiptamiðill og ekki hægt að tryggja persónuvernd í slíkum samskiptum.
Sérfræðingar í heimilislækningum hafa lokið 4-5 ára sérnámi líkt og aðrir sérfræðingar í læknastétt.
Hver fjölskylda hefur rétt á að leita til heimilislæknis með heilsufarsvandamál sín.
- Ef þú ert skráð(ur) hjá heimilislækni þá hefur hann yfirsýn yfir heilsufar þitt og fjölskyldu þinnar, veitir ykkur samfellda þjónustu og er tengiliður ykkar við heilbrigðisþjónustuna.
- Heimilislæknirinn þinn greinir og meðhöndlar heilsuvanda þinn og veitir þér markvissa ráðgjöf ef þörf er á frekari hjálp í heilbrigðiskerfinu, svo sem sérfræðiþjónustu.
- Heimilislæknirinn gætir fyllsta trúnaðar og gagnkvæmt traust ríkir milli hans og þeirra sem hann sinnir.
Læknar stöðvarinnar skrifa gjarnan tilvísanir til sérgreinalækna.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.
Að skipta um heimilislækni
Ef upp koma hnökrar í samskiptum skjólstæðinga og heimilislæknis þá hvetjum við fólk til að ræða það fyrst við sinn heimilislækni. Ef skjólstæðingur treystir sér ekki til að leita til hans áfram og óskar því eftir að skipta um heimilislækni er við núverandi aðstæður eingöngu hægt að fá skráningu á stöðina.
Ef viðkomandi býr utan Efra-Breiðholts er æskilegt að hann leiti á sína hverfisstöð eftir nýjum heimilislækni.
Heimilislæknirinn getur sagt upp skjólstæðingi ef trúnaðarbrestur hefur orðið.