Hjúkrunarmóttaka er opin alla virka daga frá kl. 8.00-16.00. Æskilegt er að panta tíma nema erindið þoli ekki bið. Læknir er alltaf á bakvakt í móttökunni.

Hjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf í síma 513-1550, virka daga frá kl 8:00-16:00. Ef erindið er brýnt þarf að láta móttökuritara vita þannig að hægt sé að fá samband án tafar. Annars taka móttökuritarar skilaboð og hjúkrunarfræðingur hefur samband við fyrsta tækifæri.

Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður á heilsugæslustöðinni starfa við:

  • sykursýkismótttöku
  • hjúkrunarmóttöku
Við stöðina starfa nú 9 hjúkrunarfræðingar og eru tveir þeirra einnig með ljósmæðramenntun.
Hjúkrunarmóttaka felur í sér:
  • ráðgjöf
  • símaþjónustu
  • sáraskiptingar
  • bólusetningar og sprautugjafir
  • skyndimóttöku fyrir smáslys og bráð veikindi

Framkvæmdar eru eftirfarandi rannsóknir og mælingar:

  • lungnaþolspróf (öndunarmælingar)
  • mælingar á blóðþrýstingi
  • hjartalínurit
  • einfaldar blóð- og þvagrannsóknir