Heilsuvernd í skólum hverfisins er sinnt af hjúkrunarfræðingum og læknum stöðvarinnar. Hjúkrunarfræðingar hafa fastan viðverutíma í Fellaskóla og Hólabrekkuskóla.

Tilgangur heilsuverndar skólabarna er að fylgjast með heilsu, þroska, líðan og högum barna á grunnskólaaldri.

Hlutverk hennar er að stuðla að líkamlegu, andlegu og félagslegu heilbrigði skólabarna og að greina og sinna heilbrigðisvandamálum sem hafa áhrif á velferð nemenda og námsgetu. Einnig að meta þá þætti í umhverfi og aðstæðum barna sem hafa áhrif á heilsu og líðan þeirra.

Boðið er upp á reglulegar skoðanir, viðtöl og fræðslu ásamt bólusetningum.

Skólar sem stöðin veitir þjónustu eru:

  • Fellaskóli
  • Hólabrekkuskóli