Bólusetningar
Á stöðinni eru framkvæmdar eftirfarandi bólusetningar:
-
Almennar bólusetningar
-
Ferðamannabólusetningar
-
Inflúensubólusetningar
-
Lungnabólgubólusetningar
-
Ungbarnabólusetningar
Inflúensubólusetningar hefjast 8. október 2012.
Bólusett verður frá kl. 10:00 til 12:00 og 14:00 til 15:00 alla virka daga. Æskilegt er að panta tíma í bólusetninguna.
Á haustin fer fram á stöðinni bólusetning gegn inflúensu hjá 60 ára og eldri og þeim sem haldnir eru langvinnum sjúkdómum.
Allir sem fá bólusetningu þurfa að greiða komugjald til stöðvarinnar, en þeir sem eru 60 ára og eldri, öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum, heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að framan og þungaðar konur fá bóluefnið frítt.
Munið að framvísa afsláttar- og/eða örorkuskírteinum við komuna.
Mikilvægt er fyrir alla að hafa örugga grunnbólusetningu gegn mænusótt, stífkrampa og barnaveiki.
Endurtaka þarf þessar bólusetningar á 10 ára fresti ef hætta er á smiti.
Allar almennar ferðamannabólusetningar eru framkvæmdar á stöðinni.
Upplýsingar um bólusetningar vegna ferðalaga til útlanda fást hjá hjúkrunarfræðingum og læknum stöðvarinnar.
Mikilvægt er að hafa samband með góðum fyrirvara fyrir ferð.
| Aldur | Við hverju er bólusett |
|---|---|
| 3 mán. | kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. |
| 5 mán. | kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. |
| 6 mán | Meningókokkum C |
| 8 mán. | Meningókokkum C |
| 12 mán. | kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. |
| 18 mán. | mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu |
| 4 ára | kíghósta, barnaveiki og stífkrampa í einni sprautu |