Hjúkrunarþjónusta
Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður á heilsugæslustöðinni starfa við:
- ung-og smábarnavernd
- mæðravernd
- heilsugæslu eldri borgara
- skólaheilsugæslu
- hjúkrunarmóttöku
Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga
Í vakthafandi hjúkrunarfræðing er hægt að hringja frá kl. 9:00 til 12:00 og frá kl. 13:00 til 16:00 alla virka daga í gegnum skiptiborð heilsugæslustöðvarinnar í síma 585-7800.
Boðið er upp á símaráðgjöf. Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.
Hjúkrunarmóttaka
Í hjúkrunarmóttöku er veitt eftirfarandi þjónusta:
- ráðgjöf
- símaþjónusta
- sáraskiptingar
- bólusetningar og sprautugjafir
- skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi
Framkvæmdar eru eftirfarandi rannsóknir og mælingar:
- mælingar á blóðþrýstingi
- lungnaþolspróf (öndunarmælingar)
- hjartalínurit
Heimaþjónusta Reykjavíkur annast heimahjúkrun.