Samvistir foreldris og barns, þar sem truflandi áreitum úr umhverfinu er haldið í lágmarki, eru börnum mjög mikilvægar. Notaleg samvera ýtir undir sterkari tengsl og jákvæð samskipti og með henni miðla foreldrar því til barna sinna að þau séu elskuð og virt. Foreldrar hafa að sjálfsögðu ekki tækifæri á að veita börnum óskipta athygli öllum stundum, enda þurfa börn einnig að fá að þróa sjálfstæðan leik og að vera sjálfum sér næg.
 
En æskilegt er að skipuleggja sérstakar samverustundir sem helgaðar eru barninu eingöngu, helst daglega. Slíkar stundir, þó ekki sé nema í um 20 mínútur í senn er líka upplagt nýta til að æfa jákvæð samskipti og virka hlustun. Sem dæmi um hvað hægt er að gera í samverustundum má nefna:

  • að lesa fyrir barnið eða láta það lesa fyrir sig
  • að tala við barnið, leyfa því að stýra samræðunum og stilla sig um að gefa ráð
  • að slaka á með barninu, kannski bara að setjast niður á bekk í almenningsgarði eða við fjöruna
  • að spila við barnið eða fara í leiki, allt frá því að spila lúdó og ólsen-ólsen til þess að fara í fótbolta í garðinum
  • að elda eða baka með barninu
  • að hjálpa barninu við að læra heima
  • að hjálpa barninu að undirbúa afmælisveislu
  • að hjálpa barninu við að útbúa afmælisgjöf handa hinu foreldrinu
  • að haldast í hendur eða halda utan um barnið á meðan verið er að horfa saman á eitthvað spennandi eða skemmtilegt.

Samskipti af þessu tagi er hægt að endurtaka oft á dag, ekki vegna þess að barnið hafi unnið til þeirra heldur vegna þess að foreldrinu þykir vænt um það. Samvist er notuð til viðbótar þeirri umbun sem foreldri hefur þegar veitt barni sin fyrir góða framkomu.

Aðlagað úr Uppeldisbókinni, að byggja upp færni til framtíðar, viðauka A
© Skrudda 2008