Fjölskyldan
Kynlíf eftir meðgöngu og fæðingu
Eftir fæðingu verða miklar breytingar á líkamsstarfsemi konunar sem geta valdið þreytu, skapsveiflum og jafnvel þunglyndi. Mikill tími fer í að sinna barninu, svefnleysi getur tekið sinn toll og ef eldri börn eru í fjölskyldunni getur álagið orðið enn meira. Allt hefur þetta áhrif á líf foreldra. Eftir fæðingu er bæði kynlöngun og kynlífsvirkni hjá flestum nýbökuðum foreldrum minni fyrstu vikurnar samanborið við mánuðina fyrir þungun. Hvernig kynverund foreldranna þróast næstu mánuði eða ár er þó mismunandi.
Nánar
Faðir, móðir barn: lífið eftir barnsburð
Það er flestum mikil hamingja að fá í fangið litla, ósjálfbjarga mannveru til að vernda, hlúa að, sjá vaxa og dafna. Um leið og foreldrar nýfædds barns takast á hendur þessa auknu ábyrgð hljóta þeir að velta fyrir sér ýmsum áhrifum foreldrahlutverksins á sína eigin tilveru.
Nánar
Það sem ekkert barn getur fært í orð
Það hefur aldrei verið annað barn, sem er nákvæmlega eins gert og ég og það verður að líkum aldrei til. En þótt mig langi til að fá að vera bara svona eins og ég er, langar mig samt að geta þroskað þá hæfileika sem ég hef fengið í vöggugjöf. Til þess þarf ég á handleiðslu ykkar að halda. Það er ekki vandalaust verk.
Nánar
Að verða faðir
Faðirinn hefur hlutverk á heimilinu og gagnvart barninu. Þátttaka hans í daglegri umönnun barnsins, helst frá fyrsta degi, auðveldar honum að mynda tengsl við það. Slík tengsl eru gefandi og gera öll samskipti föður og barns upp frá því auðveldari og ánægjulegri.
Nánar
Að eignast systkin
Með góðum undirbúningi fyrir komu nýbura geta foreldrar ýtt undir jákvæða reynslu eldra barns. Það stuðlar að betri tengslamyndun á milli systkina og jákvæðri hegðun eldra systkinis í garð nýja barnsins og minnkar líkur á afbrýðisemi.
Nánar