Uppeldi og fjölskylda
Á þessum síðum er fjölbreytt fræðsluefni um uppeldi.
- Meðal annars er hér bæklingurinn Agi, uppeldi og hegðun: minnispunktar fyrir foreldra og aðra uppalendur (pdf-skjal).
- Einnig er umfjöllun um að kenna börnum að takast á við reiði og mikilvægi samveru barna og foreldra.
- Í greininni Uppeldi er forvarnastarf er ítarleg umfjöllun um foreldrahlutverkið og uppeldisfræðslu.
- Gagnlegir punktar um hegðun ungra barna fjalla í stuttu máli um skilvirkar aðferðir til að hafa áhrif á hegðun.
Einnig má benda á:
Gyða Haraldsdóttir yfirsálfræðingur á Þroska- og hegðunarstöð skrifar reglulega pistla um uppeldi.
Meðal nýrra pistla er: Hamfarafréttir og börn.
Á Þroska- og hegðunarstöð er í boði námskeiðið Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar fyrir foreldra ungra barna til að efla almenna uppeldisfærni og kenna aðferðir til að fyrirbyggja erfiðleika og þróa styrkleika. Samskonar námskeið eru haldin á ýmsum heilsugæslustöðvum.