Styrkur fyrir verðandi foreldra

Námskeið um undirbúning fæðingar

Á námskeiðinu er fjallað um hvernig má undirbúa sig fyrir fæðinguna og foreldrahlutverkið. 

Hverju er við að búast í aðdraganda fæðingar, í fæðingunni sjálfri og hvernig er hægt bregðast við. 

Rætt er um hvernig fæðing byrjar, hríðir, hvernig þær lýsa sér og hvað hefur áhrif á fæðingarferlið. Bent er á leiðir til að auðvelda fæðingu; ýmis ráð og sjálfshjálp. 

Einnig er fjallað um inngrip í fæðingu, fæðingu með keisaraskurði, nýburann, fyrstu dagana eftir fæðingu, tengslamyndun og þær breytingar sem verða í fjölskyldu við fæðingu barns og aðlögun að breyttu hlutverki.

Hvatt er til þess að foreldrar þekki viðbrögð við streitu/álagi og finni eigin styrkleika og noti eigin bjargráð. Einnig að verðandi foreldrar ræði þarfir og óskir opinskátt hvort við annað. 

Á námskeiðinu eru spurningar vel þegnar og boðið er upp á umræður.

Markmið námskeiðs er að efla sjálfstraust og sjálfshjálp verðandi foreldra í fæðingu, að verðandi foreldrar verði virkir þátttakendur í fæðingunni og styrkja jákvætt hugarfar gagnvart fæðingunni og foreldrahlutverkinu.

Fyrirkomulag námskeiðsins

Hvert námskeið er í 2 skipti, 2 - 3 klst hvert sinn. Námskeiðið hentar vel eftir 28 vikna meðgöngu.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Leiðbeinandi er Anna Margrét Pálsdóttir ljósmóðir.

Staðnámskeið

Námskeiðin eru haldin í Álfabakka 16, kjallara. 

  • Staðnámskeið 9. og 10. apríl kl. 17:00 til 19:30
  • Staðnámskeið 23. og 24. apríl kl. 17:00 til 19:30

Það er mikilvægt að mæta tímanlega þar sem innganginum er lokað þegar námskeiðið hefst. Gjarnan má hafa með sér smávægilegt að borða.

Fjarnámskeið

  • Námskeiðin fara fram á Teams og þau sem skrá sig fá sendan hlekk nokkrum dögum fyrir námskeið
  • Ekkert fjarnámskeið í boði eins og er

Skráning

Skráningarpóstur er sendur á netfang þátttakanda við staðfestingu. Ef skráningarpóstur berst ekki þarf að hafa samband á heilsugaeslan@heilsugaeslan.is.

Umsjón

Námskeiðin eru í umsjón Skrifstofu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.