Undirbúningur fyrir fæðinguna
Þegar líða tekur á meðgönguna er tímabært að ræða um og undirbúa fæðinguna. Hvers er að vænta og hvernig er hægt að undirbúa sig?
Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma til að ræða um væntanlega fæðingu til að auka líkur á jákvæðri fæðingarreynslu. Fyrsta skrefið er að fræðast um eðlilegt ferli fæðingarinnar og skoða eigin hugsanir og tilfinningar gagnvart henni. Gott er að deila upplýsingum og tilfinningum með maka og ræða æskilega fæðingarreynslu og það sem manni finnst skipta máli. Gott er að ræða um viðhorf sín við ljósmóður og fæðingarlækn í mæðraverndinni.
Góð næring og hreyfing eru mikilvæg til að undirbúa líkamann fyrir komandi fæðingu. Hvíld og slökun er líka mikilvæg heilsunnar vegna. Fundist hafa tengsl á milli holls mataræðis og góðrar útkomu úr tvíburameðgöngu, til dæmis eru tengsl á milli holls mataræðis hjá móður og fæðingarþyngdar barnanna.
Fræðsla um undirbúning fæðingar og foreldrahlutverkið
Heilsugæslan býður upp á sérstök námskeið um undirbúning fæðingar fyrir verðandi tvíbura- og fleirburaforeldra. Fjallað er um tvíburameðgöngu og fæðingu tvíbura. Farið er í gegnum eðlilegt fæðingarferli, keisaraskurð og fleira og ræddar eru aðferðir til að takast á við hríðir í fæðingu. Einnig er fjallað um brjóstagjöf tvíbura, umönnun barnanna og hvers má vænta fyrstu vikurnar eftir fæðingu. Heilsugæslan býður upp á sérstaka fræðslu um brjóstagjöf og hentar hún líka verðandi tvíburaforeldrum.
Gott er að fara á námskeið snemma á meðgöngu til þess að hafa úthald og orku í gegnum námskeiðið.
Verðandi foreldrum og foreldrum ungra barna stendur til boða að sækja sérstakt námskeið um slysavarnir barna þeim að kostnaðarlausu, Vertu skrefi á undan. Fræðslan fer fram í Miðstöð slysavarna barna (áður Forvarnahús/Slysavarnahús).
Einnig hefur heilsugæslan staðið fyrir sérstökum uppeldisnámskeiðum fyrir foreldra ungra barna. Námskeiðin heita Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar. Á þeim er lögð áhersla á að kenna foreldrum aðferðir til að skapa æskileg uppeldisskilyrði sem líklegust eru til að skila árangri í lífi barns. Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér mikilvæga eiginleika og læri færni sem nýtist því til frambúðar. Jafnframt er dregið úr líkum á ýmsum erfiðleikum í framtíðinni.