Grænmetisfæði
Próteinþörf á meðgöngu er hægt að fullnægja þó hvorki kjöt né fiskur sé á borðum. Þá er mikilvægt að sjá til þess að mjólk og egg séu hluti af mataræðinu og að maturinn innihaldi einhvers konar bauna- eða linsubaunarétti á hverjum degi. Hnetur og tófú eru einnig próteinrík matvæli. Ef egg og mjólk eru ekki hluti af mataræðinu þarf að passa enn betur upp á mataræðið og að fjölbreytni sé þar í fyrirrúmi. Þá getur verið þörf á B12-vítamíni aukalega. B12-vítamín finnst aðeins í matvælum úr dýraríkinu eins og kjöti, fiski og mjólk. Stundum er B12-vítamíni bætt út í afurðir úr jurtaríkinu eins og soyamjólk, tofu og morgunkorn en til að komast að því er mikilvægt að lesa vel á innihaldslýsingu þessara matvæla.
Það er sérstaklega mikilvægt að muna eftir D-vítamíninu og jafnvel fleiri næringarefnum eftir því hvernig fæðið er. D-vítamín finnst aðeins í matvælum úr dýraríkinu en við fáum það líka úr sólarljósi. Matvæli bætt með D-vítamíni eru t.d. fjörmjólk, sumar tegundir af soyamjólk og sumar tegundir af morgunkorni.
Kalk finnst í miklum mæli í mjólk og mjólkurafurðum. Matvæli úr jurtaríkinu sem eru rík af kalki eru t.d. spergilkál, kál, sesamfræ, möndlur og soyaafurðir.
Járn finnst aðallega í rauðu kjöti. Matvæli úr jurtaríkinu sem eru rík af járni eru t.d. soyabaunir, linsubaunir og þurrkaðir ávextir (apríkósur, sveskjur, rúsínur), dökkgrænt grænmeti, járnbætt morgunkorn, fræ, gróft korn og brauð. Gott er að hafa í huga að járnið í matnum nýtist betur ef C-vítamínríkur matur (til dæmis ávextir, ávaxtasafi og grænmeti) er borðaður með járnríkum mat.
Grænmetisfæði inniheldur yfirleitt mikið af omega-6 fitusýrum en lítið af omega-3. Matvæli úr jurtaríkinu sem rík eru af omega-3 fitusýrum eru egg, hörfræja- canola- og soyabaunaolíur.
Yfirfarið: Júní 2009.
Höfundar: Guðrún Linda Guðmundsdóttir, næringarfræðingur,
Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.