Best er að borða 4-5 sinnum á dag
Verðandi móðir ætti að gefa sér tíma til að borða morgunverð, hádegisverð og kvöldverð og auk þess tvo til þrjá millibita yfir daginn.Þannig er tryggt að næringarefnin berist stöðugt til barnsins, sveiflur í blóðsykri verða minni, hungurtilfinning verður minni milli máltíða og minni líkur eru á ofáti. Auk þess er líklegra að móðir og barn fái öll þau næringarefni sem þau þurfa á að halda.
Það þarf að gefa sér tíma til að njóta matarins og borða hæfilega mikið. Gott er að borða heita máltíð (fitulítið kjöt, fisk (bæði feitan og magran) eða baunamáltíð) á hverjum degi, þar sem próteinþörf eykst á meðgöngu en mjólkurmatur er einnig próteinríkur.
Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.