Góð næring á meðgöngu er mikilvæg fyrir vöxt og þroska barns í móðurkviði og stuðlar að heilbrigði þess síðar á ævinni. Hún er ekki síður mikilvæg fyrir vellíðan og heilsu konunnar sjálfrar.

Heilsusamlegt mataræði móður býður barninu upp á kjöraðstæður í móðurkviði þar sem það nær að vaxa og þroskast sem best miðað við erfðafræðilegar forsendur.

 

Lesa meira:

Bæklingur: Matur og meðganga: fróðleikur fyrir konur á barneignaaldri (pdf-skjal). 

Bæklingurinn er til á eftirfarandi tungumálum auk íslensku: albönsku, arabísku, ensku, pólsku, rússnesku, spænsku og thailensku. Á vef  Lýðheilsustöðvar má líka sjá bæklinginn og þar er útdráttur úr honum á ýmsum tungumálum:

Yfirfarið: apríl 2013.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.

Textinn hér á síðunum undir: Matur og meðganga er byggður á efni sem var unnið af sérfræðihópi á vegum Miðstöðvar mæðraverndar; www.heilsugaeslan.is, Lýðheilsustöðvar; www.lydheilsustod.is og Umhverfisstofnunar; www.ust.is í samvinnu við Landlæknisembættið; www.landlaeknir.is , 3.útg. 2008.
Áhersla hefur verið lögð á fræðilegan grunn þeirra ráðlegginga sem gefnar eru en byggt er á vísindagreinum, yfirlitsgreinum og niðurstöðum úr íslenskum rannsóknum er varða mengun og smitsjúkdóma. Svipaðir bæklingar frá hinum norrænu ríkjunum og Bretlandi voru notaðir til hliðsjónar. Horft var til þess hvað ætti sérstaklega við hér á landi vegna íslenskra siða og venja í mataræði.
Auk þess er stuðst við eftirfarandi heimild í umfjöllun um grænmetisfæði á meðgöngu:
Nutritional Counselling for Vegeterians During Pregnancy and Lactation. Penney DS, Miller KG. J Midwifery Womens Health 2008; 53: 37-44.