Meðal þess sem getur breyst á meðgöngu er kynlíf. 

Þar er margt sem getur haft áhrif, meðal annars líkamlegar breytingar og áhrif þeirra á sjálfsmynd konunnar. 

Löngunin er mismikil og er oft mismunandi eftir því hvort karlinn eða konan á í hlut. Hjá sumum pörum blómstrar kynlífið en hjá öðrum verður minna um það. 

Ekki hefur verið sýnt fram á að það sé varasamt að stunda kynlíf á eðlilegri meðgöngu.

Ágúst 2008.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.