Þegar þið komið á fæðingarstað tekur ljósmóðir á móti ykkur. Hún ræðir við ykkur um óskir ykkar og væntingar. 

Ljósmóðirin skoðar og metur;  legu, stærð og skorðun barnsins, hjartslátt og hreyfingar. Styrkleiki og lengd hríðanna eru einnig metin. 

Blóðþrýstingur móðurinnar, hiti og púls eru mæld. Hjartsláttur barnsins og hreyfingar, styrkur og lengd hríðanna eru metin með sírita. Með innri skoðun er hægt að meta breytingu á  leghálsinum, ásamt því að skoða hvort legvatnið sé farið. Ef þurfa þykir er konunni boðin úthreinsun á hægðir.

Yfirfarið: Í ágúst 2008.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.