Hve langan tíma tekur fæðingin?
Það er misjafnt hve langan tíma fæðing tekur og það er því erfitt að áætla tímalengd hverrar fæðingar fyrir sig.
Að meðaltali tekur útvíkkunartímabil fæðingar 12 – 14 klst. (forstig 7- 8 klst. og virkt stig 4 –7 klst.) Það er alveg eðlilegt þó útvíkkunartímabilið taki mun lengri tíma en það, svo framarlega sem móðir og barn eru við góða heilsu.
Rembingstímabil fæðingar tekur um ½ - 2 klst.
Fylgjutímabilið tekur 5 – 15 mínútur að jafnaði en getur þó dregist í allt að klukkustund.