Fæðingin
Hver fæðing er einstök og því er ekki hægt að segja til um fyrirfram hvernig hún verður. Fæðingin er náttúrulegt ferli sem getur tekið á sig ýmsar myndir.
Afstaða konunnar/væntanlegra foreldra til fæðingarinnar, líkamleg og andleg líðan skiptir verulegu máli. Upplifun móðurinnar á þeim breytingum sem eiga sér stað í líkama hennar í fæðingunni er einhver sú áhrifamesta í lífi hennar. Að fæða barn getur verið sársaukafullt, ef litið er til hríðanna en konan ætti ekki að óttast. Það er stórkostleg reynsla sem býður uppá mikla sjálfsskoðun og uppgötvun á innri styrk.
Konan ætti því að gera sitt besta til að takast á við fæðinguna með öllu því sem henni fylgir til þess að upplifa það kraftaverk sem barnsfæðing er.
Fæðingunni er skipt í þrjú tímabil:
Útvíkkunartímabil. Opnun leghálsins frá 0-10 cm. Það skiptist í forstig og virkt stig, eftir því hvernig samdrættirnir í leginu eru.
Rembingstímabil. Rembingstímabilið tekur við þegar opnun leghálsins er lokið og þá hefst ferðalag barnsins niður fæðingarveginn. Það stendur yfir þar til barnið er fætt.
Fylgjutímabil. Fylgjutímabilið hefst eftir að barnið er fætt. Þegar fylgjan hefur fæðst er fæðingin afstaðin.