• Til foreldra - um börn og óbeinar reykingar (pdf-skjal). Bæklingurinn var gefinn út af Krabbameinsfélagi Reykjavíkur og Tóbaksvarnanefnd árið 1997. Endurskoðuð og breytt útgáfa: Lýðheilsustöð 2005.Bæklingurinn er líka til á 7 öðum tungumálum, albönsku, arabísku, ensku, pólsku, rússnesku, spænsku, thailensku



 



Einnig bendum við á þessa bæklinga:

          

 

 

 

Heilsuvernd skólabarna sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta. Byggt er á hugmyndafræðinni um 6-H heilsunnar sem er samstarfsverkefni heilsuverndar skólabarna og Lýðheilsustöðvar. Eftir fræðslu fær barnið fréttabréf með sér heim.  Þá gefst foreldrum kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig þau geti nýtt sér það í daglegu lífi.

Nánari upplýsingar um heilsuvernd skólabarna má fá á undir liðnum Þjónusta á Heilsugæslustöðvum og á síðum heilsugæslustöðvanna.

Fréttabréfin eru eftirfarandi:

Fræðsluefni og leiðbeiningar fyrir foreldra barna á skólaaldri:

Þroska- og hegðunarstöð sinnir sérhæfðri greiningu og ráðgjöf vegna þroska- og hegðunarfrávika hjá börnum.

Ef þú hefur aldrei reynt að hætta að reykja áður

Þú verður að ákveða stund og stað með góðum fyrirvara. Flestir fá einhver fráhvarfseinkenni sem geta staðið í 2-4 vikur en dvína svo. Með lyfjum má draga úr fráhvarfi. Hungur og tómleikatilfinning er þó oft til staðar í fleiri mánuði. Sumir fá ekkert fráhvarf.

Ef þú hefur reynt að hætta áður

Byggðu á eigin reynslu. Af hverju vildirðu hætta? Af hverju gekk það ekki? Gerðu nú ráðstafanir til að hindra að sagan endurtaki sig.

Bandamenn í baráttunni

Þinn eiginn vilji. Fjölskyldan þ.e. innsti hringurinn. Leyfðu þeim að hjálpa þér. Lyf gegn reykingum draga úr fráhvarfi. Stuðningur fagmanns.

Óvinir í baráttunni

Vináttuþel þitt gagnvart sígarettu og reykingum. Sjálfsvorkunn. Drykkjuskapur. Ístöðuleysi. Þeim yngri gengur lakar að hætta en þeim eldri.

Hvernig

Gamla aðferðin við að hætta að reykja var að hætta "á hnefanum" og nota engin hjálparefni. Árangurinn er miklu betri ef lyf eru notuð og á skynsamlegan hátt. Þar koma ráð fagaðila sterk inn. Reykingar eru að mörgu leyti eins og langvinnur sjúkdómur og meðferðin þarf líka að vera löng. Eftir eins árs samfellt reykbindindi er sjaldgæft að reykingar taki sig upp.

Ertu tilbúinn til að:

  • brjóta upp mynstrið, bæði mynstur umhverfis og reykingafélaga
  • nota lyf við fráhvarfseinkennum
  • ákveða heppilegan og stresslausan dag til að hætta
  • semja við vin eða kunningja sem er hættur að reykja um að fá að ræða við hann daglega fyrstu dagana
  • segja fjölskyldu og vinum frá áætlunum þínum
  • vera í sambandi við fagaðila
  • nota venjulegt tyggjó eftir þörfum
  • ákveða viðbrögð við svæsinni löngun að reykja
  • halda til haga því fé sem áður fór í tóbak
  • neyta minna áfengis eða fara í algjört áfengisbindindi tímabundið
  • drekka hreint og kallt vatn og minna kaffi
  • borða meira af ávöxtum og grænmeti og minnka hitaeiningar
  • draga djúpt andann ef þig langar að reykja
  • að fitna þótt þú hreyfir þig reglulega
  • að losna við þreytu og kuldatilfinningu
  • að gera reykingar að óvini þínum.

  • Lyf sem hjálpa:

    Búprópíon (Zyban®), nikótínlyf (tyggjó, plástur, nefúði, tungutöflur, sogstautar). 

    Þorsteinn Blöndal, yfirlæknir Lungna- og berklavarnadeildar