Brjóstagjöf er mikil vinna og helgun fyrir móðurina og er ekki einkamál hennar. 

Stuðningur þeirra sem standa móðurinni næstir skiptir máli til að brjóstagjöfin verði árangursrík og ánægjuleg. Þar er pabbinn að sjálfsögðu í lykilhlutverki. Flestar mæður nefna maka sinn sem þýðingarmesta stuðningsaðilann við brjóstagjöf.

Þegar brjóstagjöfin er komin vel á veg er hún auðveld og ánægjuleg fyrir flestar mæður, börn þeirra og fjölskylduna.

Yfirfarið: Í ágúst 2008. 
Höfundar: Karítas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður Miðstöð mæðraverndar