Geðheilsa - eftirfylgd/iðjuþjálfun

Geðheilsa - eftirfylgd/iðjuþjálfun

Tilgangur þjónustunnar er að bjóða fólki með geðræn vandamál og aðstandendum þeirra eftirfylgd og ráðgjöf.

 

Í teymi fagaðila eru tveir iðjuþjálfar og sálfræðingur. Leitast er við að grípa sem fyrst inn í ferli sem leitt getur af sér óvirkni og færniskerðingu. Stuðlað er að forvörnum og fækkun sjúkrahúsinnlagna.

 

Markmiðið er að efla virkni og þátttöku einstaklingsins í samfélaginu, efla og viðhalda færni og fyrirbyggja félagslega einangrun. Lögð er áhersla á að skjólstæðingar séu virkir í bataferlinu og að þjónustan sé mótuð út frá þörfum og reynslu skjólstæðinga og aðstandenda þeirra.

 

Einstaklingar eða aðstandendur geta nálgast þessa þjónustu á eigin forsendum eða í samvinnu við fagaðila. Hægt er að hafa samband í síma eða með tölvupósti.


Forstöðumaður: Auður Axelsdóttir, iðjuþjálfi
Símar: 414-1550 og 821-2183

08.06.2011

Geðheilsa - eftirfylgd/iðjuþjálfun er flutt að Borgartúni 22

Starfsemi Geðheilsu - eftirfylgdar/iðjuþjálfunar er flutt í stærra húsnæði að Borgartúni 22.
22.06.2010

Málverkasýning hjá Hugarafli

Fimmtudaginn 24. júni kl 15:00, verður opnuð sýning á málverkum Marteins Jakobssonar að Álfabakka 16. Marteinn starfar sem sjálfboðaliði hjá Hugarafli. Sýningin stendur í mánuð.
05.10.2009

Auður Axelsdóttir forstöðumaður Geðheilsu - eftirfylgni/iðjuþjálfun fær hvatningarverðlaun

Forvarna- og fræðslusjóðurinn Þú getur! veitti Auði hvatningarverðlaunin fyrir að fitja upp á nýjungum í þjónustu við geðsjúka.

Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Eftirfylgd geðsjúkra/iðjuþjálfun

Borgartún 22, 105 Reykjavík
Sími: 414-1550, Fax:
Netfang:
audur.axelsdottir@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

8:00 - 16:00


Strætó - Mjódd

Leiðarnúmer Strætó:
Fara á www.bus.is


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;