Skrifstofustörf
Móttökuritari við Heilsugæsluna Sólvangi
Laus er til umsóknar 100% starf móttökuritara við Heilsugæsluna Sólvangi í Hafnarfirði. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Starfið felst í símsvörun og móttöku skjólstæðinga á heilsugæslustöð. Starfið krefst lipurðar í samskiptum, trúmennsku og nákvæmni í vinnubrögðum. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri tölvukunnáttu, enskukunnáttu og færni í skráningu.
Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og starfsmannafélgas ríkisstofnana.
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Erla Finnsdóttir á starfsmannasviði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í síma
585-1300.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist til starfsmannasviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík, fyrir 22. júlí n.k.
| Lýsing | Flokkur | Umsóknarfrestur |
|---|