Heimahjúkrun

Heimahjúkrun

Heilsugæslan Sólvangi annast heimahjúkrun fyrir íbúa Hafnarfjarðar og Álftaness.

Símatími heimahjúkrunar er alla virka daga frá kl. 13:00 til 13:30.

Markmið heimahjúkrunar er að veita einstaklingshæfða og faglega heimahjúkrun og gera þeim sem þjónustunnar njóta kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest. Sjá um hlutverk heimahjúkrunar

Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar annast heimahjúkrun í samvinnu við heimilislækna stöðvarinnar, sjúkrastofnanir, Félagsþjónustuna í Hafnarfirði, ættingja og fleiri aðila. Heimahjúkrun er veitt virka daga og í sérstökum tilfellum er þjónusta einnig veitt um helgar, á kvöldin og á helgidögum. Heimahjúkrun er veitt án endurgjalds.

Eftir að óskað hefur verið eftir heimahjúkrun, kemur hjúkrunarfræðingur í vitjun, metur hjúkrunarþörf og skipuleggur þjónustuna í samvinnu við einstaklinginn, heimilislækni og aðstandendur. 
Starfsfólk heimahjúkrunar metur hversu lengi skjólstæðingur þarfnast þjónustu þeirra. Útskrift er ákveðin í samráði við alla aðila málsins. Lögð er áhersla á að þótt einstaklingurinn sé formlega útskrifaður, geti hann alltaf haft samband við heimahjúkrun, ef á þarf að halda.


Heilsugæslustöð

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Sólvangur

Sólvangsvegi 2, 220 Hafnarfirði
Sími: 550-2600, Fax: 550-2601
Netfang:
solvangur@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

Virka daga kl. 8:00 - 17:00. Kvöldmótaka kl. 16:00 - 20:00 á virkum dögum.

Sjá staðsetningu á korti


Strætó - Sólvangur

Leiðarnúmer Strætó:
Fara á www.bus.is

Hvað viltu gera? - Sólvangi



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;