Heilsugæslan Seltjarnarnesi er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum á Seltjarnarnesi og Reykvíkingum í vesturbæ sunnan Hringbrautar, þar með talið háskólahverfi og Skerjafirði.
Ef þú býrð á þjónustusvæðinu getur þú skráð þig á heilsugæslustöðina. Eingöngu þeir sem eru í mæðra- eða ungbarnavernd geta skráð sig á lækni.
Í afgreiðslu heilsugæslustöðvarinnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma.
- Heilsugæslustöðin er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 18:00
- Almenn móttaka lækna og hjúkrunarfræðinga er frá kl. 8:00 til 16:00
- Símatími lækna er alla daga. Símatíma þarf að panta fyrir kl. 11:00
- Rannsóknastofan er opin frá kl. 8:00 til 11:00 alla virka daga
- Yfirlæknir: Árni Scheving Thorsteinsson
- Yfirhjúkrunarfræðingur: Emilía P. Jóhannsdóttir
- Skrifstofustjóri: Brynja Guðmundsdóttir
Siðdegismóttaka er alla virka daga frá kl. 16:00-18:00. Sumarlokun 16. júni til 13.ágúst.
Síðdegismóttöku er ætlað að sinna bráðum fljótleystum erindum sem þarfnast skjótrar úrlausnar, enda er viðtalstíminn styttri en venjulega.
Komugjöld eru hærri eftir kl. 16:00.
Bólusetningarátak gegn inflúensu A(H1N1)v, svínaflensu:
Panta þarf tíma í bólusetningu. Við hvetjum alla sem ekki hafa látið bólusetja sig að gera það sem fyrst.
24.06.2010
Sumarlokun síðdegisvaktar
Síðdegisvakt heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu verður lokuð frá 16. júní til og með 15. ágúst.23.04.2010
Áhrif gosösku á heilsufar og viðbúnaður vegna öskufalls
Gosaska getur haft áhrif á fólk en helstu einkenni eru frá öndunarfærum og augum. Hér eru tveir nýjir bæklingar með ráðleggingum til fólks þar sem öskufalls gætir.