Hlíðar

Hlíðar

Heilsugæslan Hlíðum, Drápuhlíð 14-16, er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til kl. 16:00. Þá tekur síðdegisvaktin við til kl. 18:00 nema föstudaga en þá er vakt til kl 17:00. Almenn afgreiðsla og tímapantanir í síma 585-2300.

Heilsugæslan Hlíðum er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að veita íbúum Hlíðasvæðis almenna læknis- og hjúkrunarþjónustu. Svæðið takmarkast af Snorrabraut og Kringlumýrarbraut og sjóa á milli. skoða kort 

Ef þú býrð á þjónustusvæðinu getur þú skráð þig á stöðina meðan ekki er fullskráð hjá læknum stöðvarinnar. Þú pantar tíma hjá hjúkrunarfræðingi sem gengur frá skráningunni. Þá mun verða safnað upplýsingum um heilsufar þitt hjá þeim læknum sem þú hefur áður leitað til. 

Í afgreiðslu Heilsugæslunnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma.

Á stöðinni er síðdegisvakt alla virka daga milli kl. 16:00 og 18:00. Komugjöld eru hærri eftir kl. 16:00. Sumarlokun síðdegisvaktar 16. júni til 13.ágúst.
Hjúkrunarfræðingar eru með móttöku alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00. Á þeim tíma er alltaf hægt er að fá samband við hjúkrunarfræðing í síma með fyrirspurnir og bráðaerindi.
Lyfjaendurnýjanir eru alla virka daga frá kl. 9:00 til 12:00 í síma 585-2330
Rannsóknastofan er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10:00 til 11:30 og föstudaga frá kl .13:00 til 14:30.

  • Yfirlæknir er Stefán Finnsson
  • Yfirhjúkrunarafræðingur er Eva K. Hreinsdóttir
  • Skrifstofustjóri er Kristjana Sigmundsdóttir

24.06.2010

Sumarlokun síðdegisvaktar

Síðdegisvakt heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu verður lokuð frá 16. júní til og með 15. ágúst.
23.04.2010

Áhrif gosösku á heilsufar og viðbúnaður vegna öskufalls

Gosaska getur haft áhrif á fólk en helstu einkenni eru frá öndunarfærum og augum. Hér eru tveir nýjir bæklingar með ráðleggingum til fólks þar sem öskufalls gætir.

Bólusetningarátak gegn inflúensu A(H1N1)v, svínaflensu:
Panta þarf tíma í bólusetningu. Við hvetjum alla sem ekki hafa látið bólusetja sig að gera það sem fyrst.

Ef um bráð veikindi eða slys er að ræða er hægt að ná sambandi við lækni/hjúkrunarfræðing samdægurs og án fyrirvara. Bráðatilvik hafa alltaf forgang.

Utan ofangreinds opnunartíma er bent á Læknavaktina, Smáratorgi 1, Kópavogi. sími 1770. Læknavaktin er opin virka daga frá kl.17:00 til 23:30 og um helgar og hátíðisdaga frá kl. 9:00 til 23:30. Ef um alvarleg slys eða lífshættuleg bráð veikindi er að ræða, skal hafa samband við neyðarlínuna í síma 112.

 


Heilsugæslustöð

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Hlíðar

Drápuhlíð 14-16, 105 Reykjavík
Sími: 585-2300, Fax: 585-2301
Netfang:
hlidar@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

Virka daga kl. 8:00 - 17:00. Síðdegisvakt alla virka daga kl. 16:00 - 18:00. Sumarlokun síðdegisvaktar 16. júní - 15.ágúst.

Sjá staðsetningu á korti


Strætó - Hlíðar

Leiðarnúmer Strætó:
Fara á www.bus.is

Hvað viltu gera? - Hlíðar



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;