Heilsugæslan Efra-Breiðholti er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum Efra-Breiðholts.
Ef þú býrð á þjónustusvæðinu getur þú skráð þig á stöðina meðan ekki er fullskráð hjá læknum stöðvarinnar. Þú pantar tíma hjá hjúkrunarfræðingi sem gengur frá skráningunni. Þá mun upplýsingum um heilsufar þitt verða safnað hjá þeim læknum sem þú hefur áður leitað til.
Í afgreiðslu heilsugæslustöðvarinnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma.
Lyfjaendurnýjanir í síma 513-1595 frá kl. 9:00 til 11:30 alla virka daga.
Rannsóknastofan er opin frá kl. 8:00 til 9:30 alla virka daga, nema fimmtudaga frá kl 13:00 til 14:00.
Hjúkrunarráðgjöf er frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga.
- Yfirlæknir: Þórður G. Ólafsson
- Yfirhjúkrunarfræðingur: Hanna María Kristjónsdóttir
- Skrifstofustjóri: Margrét Hjálmarsdóttir
Bólusetningarátak gegn inflúensu A(H1N1)v, svínaflensu:
Panta þarf tíma í bólusetningu. Við hvetjum alla sem ekki hafa látið bólusetja sig að gera það sem fyrst.