Lyfjaávísanir 2010
Hér fara á eftir upplýsingar um þau lyf sem læknar þeirra 15 heilsugæslustöðva sem tilheyra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og læknar Heilsugæslunnar í Salahverfi ávísuðu árið 2010. Verðmætið er reiknað út frá síðasta einingarverði eins og það var skráð í Sögu í desember 2010. Þá kemur fram fjöldi eininga og fjöldi skilgreindra dagskammta (DDD) í ATC-kerfinu samkvæmt WHO.
| A Meltingarfæra- og efnaskiptalyf - Kostnaðarsundurliðun Einstök lyf raðað eftir lyfjaflokkum (pdf) |
450.224.706 kr. |
12,3% |
| B Blóðlyf - Kostnaðarsundurliðun Einstök lyf raðað eftir lyfjaflokkum (pdf) |
65.640.968 kr. |
1,8% |
| C Hjarta- og æðasjúkdómalyf - Kostnaðarsundurliðun Einstök lyf raðað eftir lyfjaflokkum (pdf) |
505.819.106 kr. |
13,8% |
| D Húðlyf - Kostnaðarsundurliðun Einstök lyf raðað eftir lyfjaflokkum (pdf) |
87.082.495 kr. |
2,4% |
| G Þvagfæralyf, kvensjúkdómalyf og kynhormónar - Kostnaðarsundurliðun Einstök lyf raðað eftir lyfjaflokkum (pdf) |
403.741.449 kr. |
11,0% |
| H Hormónalyf önnur en kynhormónar - Kostnaðarsundurliðun Einstök lyf raðað eftir lyfjaflokkum (pdf) |
65.963.031 kr. |
1,8% |
| J Sýkingalyf - Kostnaðarsundurliðun Einstök lyf raðað eftir lyfjaflokkum (pdf) |
188.786.627 kr. |
5,2% |
| L Æxlishemjandi lyf og lyf til ónæmistemprunar - Kostnaðarsundurliðun Einstök lyf raðað eftir lyfjaflokkum (pdf) |
23.769.084 kr. |
0,7% |
| M Vöðvasjúkdóma- og beinagrindarlyf - Kostnaðarsundurliðun Einstök lyf raðað eftir lyfjaflokkum (pdf) |
177.161.085 kr. |
4,8% |
| N Tauga- og geðlyf - Kostnaðarsundurliðun Einstök lyf raðað eftir lyfjaflokkum (pdf) |
1.168.107.471 kr. |
32,0% |
| P Sníklalyf (skordýraeitur og skordýrafælur) - Kostnaðarsundurliðun Einstök lyf raðað eftir lyfjaflokkum (pdf) |
9.970.110 kr. |
0,3% |
| R Öndunarfæralyf - Kostnaðarsundurliðun Einstök lyf raðað eftir lyfjaflokkum (pdf) |
471.172.501 kr. |
12,9% |
| S Augn- og eyrnalyf - Kostnaðarsundurliðun Einstök lyf raðað eftir lyfjaflokkum (pdf) |
37.190.981 kr. |
1,0% |
| Samtals allir lyfjaflokkar |
3.654.629.614 kr. |
Til samanburðar þá var heildarverðmæti ávísaðra lyfja þeirra 15 stöðva sem tilheyra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins 3.400.289.673 kr., hafði lækkað um 540 milj. kr. frá árinu 2009, eða sem nemur tæplega 14%. Það lætur nærri að samsvara breytingunni á gengi krónunnar (styrkingu krónunnar). Verðmæti ávísaðra lyfja hefur því haldist nokkuð svipað milli ára á föstu verðlagi.
Hafa ber í huga að sérlyf sem læknir ávísar í Sögu-kerfinu gæti apótekið hafa afgreitt sem samheitalyf auk þess sem sjúklingar gætu hafa sleppt að leysa út sum lyf sem ávísað var. Því má allt eins búast við að samsvarandi tölur úr gagnagrunni landlæknis yrðu ívið lægri.
Í Sögu er ekkert verð að finna fyrir lausasölulyf. Smásöluverð var reiknað samkvæmt reiknireglum Lyfjaverðskrár út frá heildsöluverði. Verð úr apóteki gæti hafa verið annað.
Skilgreindur dagskammtur (DDD) er tölfræðileg meðaltalseining sem er ekki alltaf sá dagskammtur sem læknir ávísar sjúklingi í tilteknu tilfelli. DDD er því stundum breytt þegar notkunarmynstrið hefur breyst. Gerist það tekur breytingin gildi um áramót. DDD hefur ekki verið ákvarðað fyrir öll lyf.
Að teknu tilliti til annmarka er auðvelt að átta sig á lyfjaávísanamynstrinu, hvaða lyf eru mest notuð, hvaða lyf eða lyfjaflokkar valda mestum útgjöldum, hvar breytingar á lyfjaávísunum gætu lækkað kostnað samfélagsins, og með samanburði við fyrri ár hvar kostnaður hefur breyst.
Breytingar á reglugerð um kostnaðarhlutdeild sjúkratryggðra sem fyrst komu fram á fyrri hluta árs 2009 höfðu strax talsverð áhrif. Þær fyrstu sem tóku til prótónpumpuhemla (A02BC) og statína (C10A) giltu frá 1. mars 2009. Þá kom að lyfjum sem verka á renín-angíotensín-kerfið (C09) frá 1. október 2009, síðan að lyfjum með áhrif á beinbyggingu og beinmyndun (M05B) frá 1. nóvember, og síðast voru það astmalyfin (R03A og R03B) frá 1. janúar 2010. Í þeim töflum sem hér fara á eftir hafa tölur fyrir heilsugæsluna í Salahverfi verið dregnar frá þannig að bornar eru saman heildartölur fyrir heilsugæslustöðvarnar 15 sem eru innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fyrir árin 2009 og 2010.
Kostnaður vegna prótónpumpluhemla (A02BC) lækkaði um 74 miljónir króna milli ára auk þess sem færri dagskömmtum var ávísað sem nemur 10%. Að teknu tilliti til þess og gengisbreytinga þá er í raun um svolitla lækkun að ræða þótt hún sé miklum mun minni en milli áranna 2008 og 2009. Notkunin hafði færst frá esómeprazóli yfir til ómeprazóls árið 2009. Á árinu 2010 dregur enn úr notkun esómeprazóls en færist að nokkru yfir á rabeprazól. Samanlagt er notkun ómeprazóls og rabeprazóls mjög svipuð milli áranna 2009 og 2010, mælt í DDD.
|
Lyfjaflokkur |
2010 |
2009 | |||
|
ATC |
Samheiti |
Verðmæti |
DDD |
Verðmæti |
DDD |
|
A02BC01 |
Ómeprazól |
105.463.801 kr. |
1.437.152 |
151.179.678 kr. |
1.932.402 |
|
A02BC03 |
Lansóprazól |
4.255.313 kr. |
33.077 |
10.044.159 kr. |
65.730 |
|
A02BC04 |
Rabeprazól |
61.269.900 kr. |
759.544 |
33.147.484 kr. |
356.366 |
|
A02BC05 |
Esómeprazól |
66.400.529 kr. |
292.119 |
117.202.883 kr. |
461.565 |
|
A02BC alls |
Prótónpumpuhemlar |
237.389.543 kr |
2.523.892 |
311.574.204 kr |
2.816.062 |
Þegar litið er til statínanna (C10AA) sést að kostnaður vegna ávísana þeirra stóð nánast í stað í krónum talið, jafnframt því sem fjöldi skilgreindra dagskammta óx töluvert (51,6%).
|
Lyfjaflokkur |
2010 |
2009 | |||
|
ATC |
Samheiti |
Verðmæti |
DDD |
Verðmæti |
DDD |
|
C10AA01 |
Simvastatín |
48.372.183 kr. |
1.626.789 |
27.947.319 kr. |
895.883 |
|
C10AA03 |
Pravastatín |
|
|
1.310.595 kr. |
3.556 |
|
C10AA04 |
Flúvastatín |
|
|
56.004 kr. |
131 |
|
C10AA05 |
Atorvastatín |
15.445.358 kr. |
340.040 |
28.263.448 kr. |
368.095 |
|
C10AA07 |
Rósúvastatín |
6.933.743 kr. |
47.757 |
12.168.309 kr. |
60.857 |
|
C10AA alls |
HMG-CoA-redúktasa-hemlar |
70.751.284 kr. |
2.014.586 |
69.745.675 kr. |
1.328.522 |
Um lyf sem verka á renín-angíotensín-kerfið (C09) er það að segja að meira var ávísað af óblönduðum ACE-hemlum en áður, eða 54% meira mælt í fjölda skilgreindra dagskammta, en nokkru minna ávísað af óblönduðum angíotensín-II-hemlum (8,6% samdráttur í DDD). Þá hefur kostnaður vegna ávísunar angíotensín-II-hemla í blöndu með öðrum lyfjum lækkað um 91,6 miljón krónur frá fyrra ári. Þótt DDD vanti til samanburðar þá má samt sjá að ekki er minna notað af þessum lyfjum en áður, heldur hefur tilfærsla orðið til ódýrari lyfjanna, t.a.m.hefur ávísun á kandesartan með hýdróklórtíazíði (C09DA06) dregist talsvert saman frá fyrra ári og meira verið ávísað af ódýrari samheitalyfjunum í þeim lyfjaflokkum þar sem þau eru í boði (C09DA01 og C09DA03).
|
C09 Lyf sem verka á renín-angíotensín-kerfið | |||||
|
Lyfjaflokkur |
2010 |
2009 | |||
|
ATC |
Samheiti |
Verðmæti |
DDD |
Verðmæti |
DDD |
|
C09AA01 |
Kaptópríl |
1.589.569 kr. |
37.900 |
1.609.669 kr. |
41.050 |
|
C09AA02 |
Enalapríl |
22.160.772 kr. |
1.200.470 |
21.086.656 kr. |
671.743 |
|
C09AA04 |
Perindópríl |
17.040 kr. |
90 |
3.257.635 kr. |
25.545 |
|
C09AA05 |
Ramipríl |
2.836.118 kr. |
165.200 |
2.825.894 kr. |
170.500 |
|
C09AA07 |
Benazepríl |
|
|
63.580 kr. |
523 |
|
C09AA alls |
ACE-hemlar, óblandaðir |
26.603.499 kr. |
1.403.660 |
28.843.434 kr. |
909.360 |
|
|
|
|
|
|
|
|
C09BA02 |
Enalapríl og þvagræsilyf |
25.247.460 kr. |
|
22.750.350 kr. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
C09CA01 |
Lósartan |
32.619.156 kr. |
744.233 |
32.664.396 kr. |
565.789 |
|
C09CA02 |
Eprósartan |
64.540 kr. |
392 |
432.072 kr. |
2.352 |
|
C09CA03 |
Valsartan |
12.621.772 kr. |
296.576 |
13.519.508 kr. |
173.222 |
|
C09CA06 |
Kandesartan |
9.983.750 kr. |
104.531 |
56.756.376 |
510.587 |
|
C09CA07 |
Telmisartan |
5.969 kr. |
56 |
270.544 kr. |
2.282 |
|
C09CA alls |
Angíotensín-II-hemlar, óblandaðir |
55.295.187 kr. |
1.145.788 |
103.642.896 kr. |
1.254.232 |
|
|
|
|
|
|
|
|
C09DA01 |
Lósartan og þvagræsilyf |
42.553.008 kr. |
- |
47.444.908 kr. |
- |
|
C09DA03 |
Valsartan og þvagræsilyf |
13.319.981 kr. |
- |
20.681.366 kr. |
- |
|
C09DA06 |
Kandesartan og þvagræsilyf |
5.487.970 kr. |
- |
33.134.289 kr. |
- |
|
C09DA07 |
Telmisartan og þvagræsilyf |
162.936 kr. |
- |
64.168 kr. |
- |
|
C09DB01 |
Valsartan og amlódipín |
369.856 kr. |
- |
3.550.065 kr. |
- |
|
C09D alls |
Angíotensín-II-hemlar í blöndu |
61.893.751 kr. |
- |
104.874.796 kr. |
- |
|
|
|
|
|
|
|
|
C09XA02 |
Aliskíren |
512.612 kr. |
3.332 |
995.346 kr. |
5.402 |
|
|
|
|
|
|
|
|
C09 alls |
|
169.552.509 kr. |
|
261.106.822 kr. |
|
Meira var ávísað af lyfjum með áhrif á beinbyggingu og beinmyndun (M05B) mælt í fjölda skilgreindra dagskammta sem nemur 16,6%. Jafnframt breyttist hlutfallið milli alendrónsýru og hinna lyfjanna þannig að alendónsýra var 89% árið 2010 í stað tæplega 70% árið 2009. Kostnaður var samt um þriðjungi minni en áður þegar tillit hefur verið tekið til gengisbreytinga.
|
Lyfjaflokkur |
2010 |
2009 | |||
|
ATC |
Samheiti |
Verðmæti |
DDD |
Verðmæti |
DDD |
|
M05BA04 |
Alendrónsýra |
18.973.013 kr. |
310.656 |
15.047.888 kr. |
185.584 |
|
M05BA06 |
Íbandrónsýra |
5.680.944 kr. |
19.414 |
19.504.976 kr. |
81.420 |
|
M05BA07 |
Rísedrónsýra |
1.766.130 kr. |
19.376 |
7.858.852 kr. |
10.368 |
|
M05BA alls |
Bisfosfónöt |
26.420.087kr. |
349.446 |
42.411.716 kr. |
277.372 |
|
|
|
|
|
|
|
|
M05BB03 |
Alendrónsýra og kólekalsíferól |
911.904 k. |
4.032 |
6.530.322 kr. |
25.704 |
|
|
|
|
|
|
|
|
M05B alls |
Lyf með áhrif á beinbyggingu og beinmyndun |
27.331.991 kr. |
353.478 |
48.942.038 kr. |
303.076 |
Þegar litið er til breytinga á ávísunum lyfja við teppusjúkdómum í öndunarvegi sést að kostnaður hefur dregist saman um rúmar 85 miljónir króna milli 2009 og 2010. Verulega hefur dregið úr notkun samsettu lyfjanna sem innihalda beta-agónista og sykurstera (R03AK06 og R03AK07) en notkunin vaxið af ósamsettu lyfjunum. Að teknu tilliti til gengisbreytinga lætur þá nærri að kostnaðurinn hafi dregist saman um nálægt 6%.
|
Lyfjaflokkur |
2010 |
2009 | |||
|
ATC |
Samheiti |
Verðmæti |
DDD |
Verðmæti |
DDD |
|
R03AC02 |
Salbútamól |
29.911.337 kr. |
389.515 |
27.881.230 kr. |
354.370 |
|
R03AC03 |
Terbútalín |
8.710.536 kr. |
110.950 |
7.159.599 kr. |
86.675 |
|
R03AC12 |
Salmeteról |
13.839.312 kr. |
73.500 |
4.846.768 kr. |
24.300 |
|
R03AC13 |
Formóteról |
1.698.008kr. |
4.669 |
2.611.866 kr. |
6.885 |
|
|
|
|
|
|
|
|
R03AK06 |
Salmeteról og önnur lyf við teppusjúkdómum í öndunarvegi |
74.112.773 k. |
- |
130.661.202 kr. |
- |
|
R03AK07 |
Formóteról og önnur lyf við teppusjúkdómum í öndunarvegi |
87.029.903 kr. |
- |
160.452.725 kr. |
- |
|
|
|
|
|
|
|
|
R03A alls |
Adrenvirk lyf til innúðunar |
215.301.869 kr. |
- |
333.613.390 kr. |
- |
|
|
|
|
|
|
|
|
R03BA02 |
Búdesóníð |
24.965.208 kr. |
136.820 |
8.641.784 kr. |
47.333 |
|
R03BA05 |
Flútíkasón |
40.954.086 kr. |
232.095 |
16.838.893 kr. |
86.005 |
|
R03BA07 |
Mómetasón |
333.640 kr. |
1.470 |
144.900 kr. |
540 |
|
|
|
|
|
|
|
|
R03BB01 |
Ípratrópíumbrómíð |
465.740 kr. |
5.867 |
1.923.456 kr. |
16.667 |
|
R03BB04 |
Tíótrópíumbrómíð |
37.226.654 kr. |
116.610 |
43.549.033 kr. |
123.720 |
|
|
|
|
|
|
|
|
R03B alls |
Önnur lyf til innúðunar við teppusjúkdómum í öndunarvegi |
103.945.328 kr. |
492.862 |
71.098.066 kr. |
274.265 |
Yfirlit yfir ATC/DDD kerfið má finna á vef WHO Collaborating Centre for Drug Statistics Methodology.