Þönglabakka 1, 109 Reykjavík
Sími: 585-1350Fax: 585-1370

Almennur þjónustutími

8:20-16:15

Þroska- og hegðunarstöð (ÞHS) veitir þjónustu vegna barna sem glíma við frávik eða aðra erfiðleika í þroska, hegðun eða líðan. Sinnt er greiningu, ráðgjöf, meðferð og fræðslu vegna slíkra frávika hjá börnum allt að 12 ára aldri.

Reglulegt faglegt samstarf er við aðra mennta, félags- og heilbrigðisþjónustu víðsvegar um landið.

Starfshópurinn er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með mestu faglegu gæði að leiðarljósi. Áhersla er lögð á notalegt viðmót og einstaklingsmiðaða nálgun. Lágmarksgjald er innheimt fyrir námskeið, en að öðru leyti er þjónustan gjaldfrjáls.

Kynningarbæklingur ÞHS fæst hér á vefnum, á heilsugæslustöðvum og víðar. Nánari upplýsingar um þjónustuna finnast undir viðeigandi fyrirsögnum vinstra megin á þessari síðu. Einnig má hafa samband í síma 585-1350 eða senda fyrirspurn með tölvupósti.

17.01.2013 13:24

Skráning er hafin á Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar

Þessi námskeið, sem hafa verið mjög vel sótt undanfarin ár, miða að því að skapa sem best uppeldisskilyrði fyrir börn með því að kenna foreldrum jákvæðar og árangursríkar...
Nánar
27.11.2012 10:31

Styrkur til Þroska- og hegðunarstöðvar frá Kvenfélagi Garðabæjar

Nýlega veitti Kvenfélag Garðabæjar Þroska- og hegðunarstöð styrk að upphæð 200 þúsund til kaupa á tækjum sem nýtast í faglegri vinnu á stöðinni. Styrkurinn verður nýttur...
Nánar