Heilsuvernd skólabarna

Heilsuvernd skólabarna

Heilsuvernd skólabarna Þróunarstofu hefur það hlutverk að þróa, leiða og samræma heilsuvernd skólabarna í samráði við heilbrigðisyfirvöld og heilsugæsluna á landsvísu.

Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmið heilsuverndar skólabarna er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð nemenda að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.

Starfsemi heilsuverndar skólabarna er samkvæmt lögum, reglugerðum og tilmælum sem um hana gilda. Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru fræðsla og heilsuefling, bólusetningar, skimanir og skoðanir og umönnun veikra og slasaðra barna ásamt ráðgjöf til nemenda, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans.

Ítarlegar upplýsingar um fyrirkomulag heilsuverndar skólabarna er að finna undir þjónusta á heilsugæslustöðvum.

Sviðstjóri er Margrét Héðinsdóttir

 


 

 


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Þróunarstofa heilsugæslunnar

Þönglabakki 1, 109 Reykjavík
Sími: 585-1350, Fax: 585-1370
Netfang:
throunarstofa@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

alla virka daga kl. 8:20 til 16:15

Sjá staðsetningu á korti


Strætó - Mjódd

Leiðarnúmer Strætó:
Fara á www.bus.is


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;