Flúorskolun
Tannskemmdir eru algengar hjá íslenskum börnum. Einungis 34% tólf ára íslenskra barna eru með óskemmdar fullorðinstennur í samanburði við 69% danskra barna.
Í nýrri aðalnámsskrá grunnskóla eru heilbrigði og velferð skilgreind sem einn af grunnþáttum mennturnar. Heilbrigði tanna er þar ekki undanskilið. Regluleg flúorskolun herðir glerung tannanna og „gerir við“ byrjandi tannskemmdir á snertiflötum tanna. Árangur skolunar er meiri ef mikið er um tannskemmdir.
Á vegum heilsugæslu höfuðborgarsvæðis er nú unnið að skipulagsbreytinum á framkvæmd flúorskolunar með það að markmiði að skapa nauðsynlegt svigrúm svo mögulegt verði að bjóða öllum grunnskólabörnum upp á flúorskolun einu sinni í viku. Forsendur eru áherslubreytingar innan skólans, gott innra skipulag og samstarf skólahjúkrunarfræðinga, starfsmanna skólans og nemanda en framkvæmdin yrði á ábyrgð skólans en efniskaup á ábyrgð heilsugæslunnar. Slík samvinna er þegar farin að skila góðum árangri í nokkrum grunnskólum landsins.